![Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi Vigdís Másdóttir, Linda Pétursdóttir, Albert, Svanhvít Þórarinsdóttir, Bergþór, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Kristín Einarsdóttir Vigdís Másdóttir Blinis með rauðrófumauki reyktur lax rauðrófur rauðrófuhummús kristín einarsdóttir linda pétursdóttir ólöf kolbrún harðardóttir svanhvít þórarinsdóttir](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/11/P1011681.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi
Blinis eru litlar ósætar lummur. Ef maður hefur tíma er upplagt að bjóða upp á slíkt áður en gestir setjast til borðs. Hingað komu á dögunum nokkrar elegant konur í síðdegiskaffi fyrir Jólablað Morgunblaðsins. Þegar elegant konur koma við er bara við hæfi að skála í góðu freyðivíni og með því voru blinis með rauðrófumauki og laxi. Óskaplega gott og fagurt.
— REYKTUR LAX — RAUÐRÓFUR — LUMMUR — LAX — JÓLIN —
.
Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi
Blinis
1/2 b hveiti
1/2 b heilhveiti
1 tsk lyftiduft
salt
2/3 b (soya)mjólk
1 egg
1 msk olía.
Blandið öllu saman og steikið litlar lummur á pönnu. Látið kólna.
Rauðrófumauk
150-200 g soðin rauðrófa
1 ds mascarpone
1 tsk síróp
1 tsk ólífuolía
1/2 tsk sítrónusafi
salt og pipar
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið þangað til er orðið silkimjúkt. Kælið.
Ofan á: Reyktur lax og steinselja.
Sprautið rauðrófumaukinu í hring ofan á bliniskökurnar. Vefjið laxinum upp svo hann myndi rós og setjið ofan í. Skreytið með steinselju.
![Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/11/Blinis.png?resize=696%2C458&ssl=1)
![Jólaboð Jólaboð Blinis með rauðrófumauki og reyktum laxi Vigdís Linda Albert Svanhvít þórarinsdóttir Bergþór Ólöf Kolbrún Kristín Einarsdóttir](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/11/Jólaboð.png?resize=696%2C376&ssl=1)
Uppskriftin birtist í Jólablaði Morgunblaðsins. Með litfögrum bliniskökunum var skálað í rabarbaradrykk og í Mumm Demi-Sec freyðivíni
![Blinis Blinis](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2016/11/IMG_7909.jpg?resize=696%2C928&ssl=1)
–
— REYKTUR LAX — RAUÐRÓFUR — LUMMUR — LAX — JÓLIN —
— BLINIS MEÐ RAUÐRÓFUMAUKI OG REYKTUM LAXI —
–