Ferskt, svalandi og litfagurt vatnsmelónusalat

Ferskt og svalandi vatnsmelónusalat SALAT VATNSMELÓNA
Ferskt og svalandi vatnsmelónusalat

Ferskt og svalandi vatnsmelónusalat

Sumarlegt salat sem á vel við á góðviðrisdögum. Það getur bæði verið sér réttur, þegar enginn nennir að stússast í eldhúsinu á hlýjum sumardögum, eða meðlæti með (grill)matnum. Salat er sáraeinfalt og tekur stutta stund að útbúa það. Til tilbreytingar má saxa rauðlauk og bæta við þetta litfagra salat.

.

SALÖTVATNSMELÓNUR

.

Ferskt og svalandi vatnsmelónusalat

4 b fersk vatnsmelóna, skorin í bita

1 b fetaostur

handfylli af mintu

1 msk hunang

2 msk ólífuolía

safi úr 1/2 lime

salt og pipar

Byrjið á að taka utan af melónunni og fræhreinsa. Skerið í bita og setjið í salatskál. Hellið olíunni af fetaostinum og dreifið honum yfir melónunina. Saxið mintu og stráið yfir salatið. Blandið saman í glerkrukku hunangi, olíu, limesafa, salti og pipar. Setjið lokið á og hristið vel saman. Hellið yfir salatið.

Melónusalatið birtist á hinum stórfína matarvef Moggans

.

VATNSMELÓNUSALAT

.

SaveSave

SaveSave

SaveSave

SaveSave

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.