![Verkleg æfing í framreiðslu og matreiðslu hjá nemum í MK Verkleg æfing í framreiðslu og matreiðslu hjá nemum í MK Kokkanemar, þjónanemar, Carola, Gúddý, Jón, Framreiðslu- og matreiðslunemar á lokaári, Hótel og matvælaskólinn í Menntaskólinn í Kópavogi](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2018/03/MK-Verkleg-æfing-.png?resize=696%2C284&ssl=1)
Verkleg æfing í framreiðslu og matreiðslu hjá nemum í MK
Framreiðslu- og matreiðslunemar á lokaári í Hótel og matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi héldu verklega æfingu í vikunni. Við brugðum okkur í betri fötin ásamt nokkrum vinum og þáðum boð þeirra. Eins og við var að búast var þarna allt til fyrirmyndar, fallega lagt á borð, fyrirtaks matur og óaðfinnanleg framleiðsla. Allt gekk þetta fumlaust fyrir sig. Þjónaneminn sem sá um okkar borð æfði sig í enskri, franskri og rússneskri framreiðslu, kynnti vínin eins og hún hefði ekki gert annað í áratug eða lengur og sama var með matinn. Lipur og elskuleg.
Það er greinilega vandað til verka í Hótel og matvælaskólanum í MK.
![MK Ragnheiður albert Guðrún Hulda](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2018/03/29216388_10215853434037927_3566265204482244608_o-1.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Ragnheiður, Albert og Guðrún Hulda
![MK Bergþór Carola Jón](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2018/03/29216878_10215853433077903_5840099836778512384_o-1.jpg?resize=696%2C552&ssl=1)
Bergþór, Carola og Jón