Steypiboðstertan

Steypiboðstertan jóhanna sigríður sigurðardóttir Baby Shower babyshower saltkaramella karamella saltkaramellukrem Frá vinstri: Hulda Steinunn, Ástrós Eva, Vilborg, Sandra Dís, Birgitta Dögg, Íris Eva sem heldur á Eiríkur Ægir, Rannveig, Brynja, Jóhanna Sigríður, Árdís Hulda (mamma Jóhönnu), Gerða og Laufey Birna.
Steypiboðstertan

Steypiboðstertan

Vinkonur Jóhönnu frænku minnar komu henni á óvænt með Baby Shower boði sem kallast Steypiboð á íslensku. Meðal góðra kaffiveitinga þar var þessi góða og fallega terta. Það þarf ekki alltaf að flækja málin, vel má bjarga sér á pakkatertum eins og frá Betty Crocker eins og gert er hér. Saltkaramellusmjörkrem, sem er alveg himneskt, á milli, á hliðarnar og ofan á. Ofan á það fór svo bleikt súkkulaði frá Allt í köku.

JÓHANNA SIGRÍÐURBETTY CROCKER

.

Steypiboðstertan

1 pk Betty Crocker súkkulaðiterta. Bökuð eftir upplýsingum á pakkanum

Saltkaramellu-smjörkrem

½ bolli púðursykur

½ bolli smjör

2 msk sýróp

½ bolli rjómi (fer eftir smekk)

1 klípa gróft salt

1 bolli smjör, mjúkt

2 bollar flórsykur

1 msk vanillusykur

Karamella – Bræðið púðursykur, smjör og sýróp í potti á meðalhita, þar til blandan fer að sjóða. Hrærið í nokkrar mín og látið kólna. Blandið salti og rjóma saman við í smá skömmtum.
Þeytið smjör, flórsykur og vanillusykur saman þar til blandan verður ljós. Blandið karamellu smám saman við smjörkremið. 
Hægt að geyma smá karamellu til að skreyta kökuna.

Bakið kökuna í 23,5 cm formi. Látið kólna.

Útbúið tvöfalda uppskrift af kreminu. Skerið tertubotninn í tvennt, setjið krem á annan botnin, hinn botninn ofan á og loks krem ofan á og á hliðarnar.

Bræðið bleika súkkulaðið, hrærið saman við ca msk. af kókosolíu. Smyrjið þessu yfir kökuna, yfir kremið.

Skreytið hliðarnar með Kit Kat.

Frá vinstri: Hulda Steinunn, Ástrós, Vilborg, Sandra Dís, Birgitta Dögg, Íris Eva sem heldur á Eiríki Ægi, Rannveig, Brynja, Jóhanna, Árdís (mamma Jóhönnu), Gerða og Laufey.
Frá vinstri: Hulda Steinunn, Ástrós Eva, Vilborg, Sandra Dís, Birgitta Dögg, Íris Eva sem heldur á Eiríki Ægi, Rannveig, Brynja, Jóhanna Sigríður, Árdís (mamma Jóhönnu), Gerða og Laufey Birna.

JÓHANNA SIGRÍÐURBETTY CROCKER

— STEYPIBOÐSTERTAN —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.