Auglýsing
 Salat með sesamkjúklingi
Salat með sesamkjúklingi

Salat með sesamkjúklingi. Í Lissabon í vor kynntumst við fjölmörgu skemmtilegu fólki sem hélt saman alla dagana sem við vorum þar. Eftir heimkomuna hittist hópurinn og snæddi saman portúgalskan mat. Stefán og Elsa komu með þetta salat, það gerist nú varla sumarlegra en þetta, fallegt á litinn og gott á bragðið. Salatið er af hinni ágætu síðu Eldhússögur.

SALÖTKJÚKLINGURLISSABON

Auglýsing

 Salat með sesamkjúklingi

1 kg. kjúklingabringur

salt & pipar

kjúklingakrydd

olía og/eða smjör til steikingar

1/2 dl maple síróp

1/3 dl sesamfræ

spínat

klettasalat

grænt salat

kokteiltómatar, skornir til helminga

avókadó, skorið í bita

mangó, skorið í bita

jarðarber, skorin í bita

nachos flögur, muldar gróft

beikon

fetaostur með olíu en olían síuð frá

Skerið kjúklingabringur í fremur litla bita og kryddið með salti, pipar og góðu kjúklingakryddi. Steikið þá á pönnu þar til þeir hafa náð góðum lit. Bætið sírópi og sesamfræjum við á pönnuna, hrærið vel saman við kjúklinginn, og látið krauma í dálitla stund (þar til enginn vökvi er eftir á pönnunni). Setjið kjúklinginn til hliðar þegar hann er tilbúinn og látið kólna.
Skerið beikon í litla bita og steikið á pönnu þar til bitarnir verða stökkir. Blandið öllum hráefnum saman og dreifið salatdressingunni yfir salatið.

Nautakraftur í sósuna var frá asty.