
Pönnusteiktur silungur með möndluflögum
Pönnusteiktur silungur með stökkum möndluflögum er einfaldur og einstaklega góður réttur. Silungurinn er aðeins steiktur á roðhliðinni, þannig að roðið verður stökkt en fiskurinn helst mjúkur og safaríkur.
Í sumarvinnu minni vitjaði ég reglulega um silunganet og matreiddi nýveiddan silung daglega fyrir hótelgesti. Af öllum þeim aðferðum sem ég prófaði fannst mér þessi einna best og henta silunginum sérlega vel. Stundum setti ég nokkrar rúsínur á pönnuna rétt áður en rétturinn var borinn fram. Sætan í þeim fer ótrúlega vel með fiskinum og möndlunum.
– FISKUPPSKRIFTIR – SILUNGUR – FISKUR Í OFNI –
.
Pönnusteiktur silungur með möndluflögum
silungur, flakaður
góð olía
salt og nýmalaður pipar
möndluflögur
ferskt dill
lime
rúsínur, ef vill
Skerið silungsflökin í hæfilega bita og kryddið með salti og pipar.
Hitið olíu á pönnu og leggið silungsbitana á hana með roðhliðina niður. Steikið við meðalhita án þess að snúa fiskinum. Silungurinn er tilbúinn þegar holdið hefur breytt um lit nær alla leið upp. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Þurristið möndluflögurnar á hreinni, þurri pönnu þar til þær eru orðnar ljósgylltar. Fylgist vel með þeim því þær geta brunnið hratt.
Færið silunginn á fat og stráið ristuðum möndluflögum yfir. Skreytið með fersku dilli og lime-bátum. Setjið nokkrar rúsínur á pönnuna í lokin og berið með, ef vill.
Berið silunginn fram strax, til dæmis með nýjum kartöflum, fersku salati eða góðu brauði.

– Kaffimeðlæti – Sítrónupasta – Pasta – Rabarbari – Afternoon Tea –
