Auglýsing
Fiskisúpa - bragðmikil og ljúf fiskur súpa fiskur
Fiskisúpa – bragðmikil og ljúf

Fiskisúpa – bragðmikil og ljúf. Matarmiklar súpur eru dásamlega góðar. Í súpuna má nota hvaða eftirlætis fisktegundir sem. Súpuna bjó ég til með nokkrum fyrirvara, lét hana standa í á þriðja klukkutíma, hitaði svo upp og setti fiskinn saman við.

FISKISÚPURFLEIRI SÚPURFISKRÉTTIRFISKUR Í OFNI

.

Fiskur í súpuna

Fiskisúpa – bragðmikil og ljúf

2 laukar

4 hvítlauksrif

2 paprikur

1/2 tsk chili

3 msk olía

1/2 flaska hvítvín

1 dós niðursoðnir tómatar í bitum

2 msk kjúklingakraftur

1 msk sterkt sinnep

2 msk kjötkraftur

1 ds kókosmjólk

3 msk rifsberjahlaup

salt og pipar

2 – 3 b vatn

1 1/2 b fiskur (t.d. lax, humar, rækjur, surimi, silungur)

Saxið lauk og papriku og steikið í olíu. Bætið öllu við nema fiskinum. sjóðið í um 15 mín.
Bætið fiskinum út í rétt áður en súpan er borin fram.

.

FISKISÚPURFLEIRI SÚPURFISKRÉTTIRFISKUR Í OFNI

FISKISÚPAN

.

Auglýsing