Fyrirlestur og fjör hjá Kvenfélagi Reyðarfjarðar

Mjög góður fiskréttur í formi Sítrónubaka með marengstoppum Rósettur með rjómasalati Fyrirlestur og fjör hjá Kvenfélagi Reyðarfjarðar reyðarfjörður kvenfélag
Með eldhressum kvenfélagskonum á Reyðarfirði

Fyrirlestur og fjör hjá Kvenfélagi Reyðarfjarðar

Það er fátt sem gleður okkur Bergþór minn eins og að hitta kvenfélagskonur og aðra hópa og spjalla um borðsiði, kurteisi og mikilvægi þess að lifa lífinu lifandi. Á dögunum vorum við hjá kvenfélagskonum á Reyðarfirði og fórum fyrir nokkur atriði, síðan var sungið og farið í leiki.
Í minni bæjum á Íslandi er hver einstaklingur mikilvægur og oftast mun virkari þátttakandi í samfélaginu en á stærri stöðum. Það kom skemmtilega á óvart að meðalaldur kvennanna er ekki svo hár, ólíkt því sem margir halda. Samheldni, gleði og mannkærleikur á vel við hjá kvenfélagskonum á Reyðarfirði og víðar. Þær láta sig samfélagið miklu varða og styrkja hin ýmsu verkefni sem eðlilega taka breytingum í tímans rás. Í lokin stiklaði Ingunn Karítas formaður kvenfélagsins á stóru um félagið og gaf okkkur bók um sögu þess sem gefin var út á aldarafmælinu árið 2016.

— KVENFÉLÖGREYÐARFJÖRÐUR

.

Fyrirlestur og fjör hjá Kvenfélagi Reyðarfjarðar

Rósettur með rjómasalati
Rósettur með rjómasalati

Rósettur með rjómasalati

Á undan fyrirlestrinum fengu allir sér af glæsilegu kaffihlaðborði og í lokin fengum við okkur aftur, aðeins meira. Meðal þess sem boðið var upp á voru rósettur sem Jóhanna Sigfúsdóttir kom með.  Mér þóttu rósettur alveg óskaplega góðar í æsku en hef nú eiginlega ekki smakkað þær í áratugi. Rósetturnar tengi ég við fermingarveislur þar sem haft var rjómasalat með perum, gráfíkjum og súkkulaði.

Rósettur með rjómasalati.

125 g hveiti

1 egg

1/2 tsk salt

1/2 dl pilsner eða bjór

2 dl mjólk

Blandið öllu saman og látið bíða í amk klukkustund áður en bakað er. Dýfið járninu í deigið og síðan beint í vel heita plöntufeiti eða tólg. Berið fram með með rjómasalati með þeyttum rjóma, súkkulaði, (niðursoðnum) perum og gráfíkjum.

Rósettur með rjómasalati
Rósettujárn
Sítrónubaka með marengstoppum
Sítrónubaka með marengstoppum

Sítrónubaka með marengstoppum

Botn

3 dl hveiti

130 g smjör, kalt

3-4 msk vatn

2 tsk vanillusykur

Sítrónusulta (lemon curd)

2 dl sykur

4 dl vatn

2-3 sítrónur

1 dl maísenamjöl

4 eggjarauður

20 g smjör

Marengs

4 eggjahvítur

1,5 dl sykur

Botn: Hitið ofn í 150°C smyrjið 24-26 cm bökuform. Hnoðið saman hveiti og smjöri í höndunum og bætið vatn. Þrýstið því ofan í bökuform og látið það ná upp á kantana. Stingið í deigið með gaffli og bakið loks við 150°C í 15 mín. Látið kólna.

Sítrónusulta: Pressið safann úr sítrónunum og rífið af þeim börkinn. Setjið vatn, sykur og 3/3 af sítrónusafanum í pott ásamt maísenamjöli og látið suðuna koma upp en hrærið stöðugt í. Smakkið blönduna til með restinni af sítrónusafanum. Bætið við eggjarauðum, sítrónuberki og smjöri og sjóðið smá stund og munið að hræra vel í á meðan. Hellið blöndunni yfir kaldan bökubotninn.

Marengs: Stífþeytið eggjahvítur og sykur. Setjið í sprautupoka og sprautið doppur yfir sítrónusultuna. Bakið við 175°C í 8-10 mín. eða þar til marengsinn hefur tekið fallegan lit. Nauðsynlegt er að fylgjast stöðugt með bökunni þar sem marengsinn brúnast hratt. Vel er hægt að gera bökuna daginn áður en hún er borin fram og geyma í kæli.

Mjög góður fiskréttur í formi
Mjög góður fiskréttur í formi

Mjög góður fiskréttur í formi

Marlín kom með þennan góða rétt sem vel getur staðið einn sem aðalréttur. Mjög bragðgóður réttur sem upphaflega voru notaðir fiskafgangar í hann. „Ég var að nota rækjur og surimi, slepti fiskinum og bætti kínóa við.” segir Marlín sem rekur gistihúsið Hjá Marlín á Reyðarfirði.

Mjög góður fiskréttur í formi (handa 4)

200-300 g soðin eða steiktur fiskur án roðs og bein

1 dl rjómi

1 sitróna

100 g hreinsaðar rækjur

100 g smjör

1 smálaukur

1-2 hvitlauksgeirar

1 steinseljuknippi

2 sneiðar franskbrauð

salt, pipar, sitrónupipar.

Látið fiskinn (eða surimi) og rækjur í elðfast mót.
Setjið léttþeyttan rjóma bragðbættum með sítrónusafa, salt, pipar og sítrónupípar ofan á.
Hrærið rifinn eða fínsaxaðan lauk, marinn hvítlauk, finskorna steinselju og mulið skorpulaust brauð út í mjúkt smjör.
Dreifið því yfir rækjurnar.
Setjið í ofn og hitið í gegn á 225°C (10-15 min)

KVENFÉLÖGREYÐARFJÖRÐUR

fyrirlestur, kvenfélög, Albert, Bergþór, borðsiðir, kurteisi

☕️

— KVENFÉLÖGREYÐARFJÖRÐUR

— FYRIRLESTUR OG FJÖR HJÁ KVENFÉLAGI REYÐARFJARÐAR —

☕️

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.