Gómsætt kaffimeðlæti hjá Kvenfélagi Grímsneshrepps

Gómsætt kaffimeðlæti hjá Kvenfélagi Grímsneshrepps. Ef ég mögulega gæti væri ég í nokkrum kvenfélögum 😉 Ekki bara vegna þess að það er mannbætandi og þær vinna að góðum málefnum heldur líka vegna kaffimeðlætisins. Við Bergþór og tengdapabbi vorum gestir hjá kvenfélagskonum í Grímsnesinu á dögunum. Ef einhvern tíman er hægt að segja að borð svigni undan veitingum þá var það hjá þeim á fundinum í Gömlu-Borg.

Laufabrauðssnittur eru hið mesta og besta hnossgæti – bæði fallegar og góðar. Heiðurinn af snittunum góðu á Þóranna Lilja Snorradóttir „Best er að sjálfsögðu að nota heimasteikt laufabrauð þar sem það er bragðmeira en það sem maður fær út í búð. Ég passa að afskorningarnir séu meira eins og smásnittur og safna þeim svo  í bauk (krakkarnir fá litið sem ekkert og eru nú ekkert sérstaklega ánægðir með það).”

Makkarónuhringur:
4 egg
1 bolli rjómi
1 bolli mjólk
250 gr makkarónur ( soðnar)
salt
2 tsk sykur
brauðrasp

Egg, rjómi og mjólk pískað saman og salti og sykri bætt út í. Heitum makkarónunum bæt í og hrært í. Sett í smurt brauðraspað form og brauðraspi stráð yfir. Bakað í 180 gráða heitum ofni í ca klst. Látið kólna og skerið í þunnar sneiðar.

Þá er að setja þetta saman:
Laufabrauð
Makkaronuhringur
Rifsberjahlaup/ bláberjasulta
Þurrkað nautakjöt/ tvíreykt hangikjöt/ grafin (heitreykt) gæsabringa.
Bláber til skrauts.

Pekanpæ. Sigríður Jónsdóttir kom með svakalega gott pekanpæ

Pekanpæ

Botn:
100 g kalt smjör
180 g hveiti
1 stk eggjarauða
1/2 tsk salt
1 msk vatn

1 dl gróft kókosmjöl brúnað á pönnu.

Fylling
1 bolli sykur
3 msk púðursykur
1/2 tsk salt
1 bolli síróp
1 tsk vanilludropar
1/3 bolli brætt smjör
2 stór egg
2 bollar pecan hnetur

Hitið ofninn í 175°C ekki á blæstri
Hrærið saman öllum hráefnum fyrir botninn. Fínt að byrja í hrærivél og klára svo í höndunum. Fletjið deigið út nægilega stórt fyrir hringlaga form, svo það þekji kantana líka.

Brúnið kókosmjölið á pönnu þar til ljósbrúnt og dreifið yfir botninn.
Hrærið saman sykri, púðursykri, salti, sírópi, smjöri, eggjum og vanillu saman í skál.
Dreyfið hnetunum ofaná kókosmjölið í botninn á forminu, hellið blöndunni ofan á.
Setið álfilmu yfir pæið og setið inní ofn í 30 min. Takið álpappírinn af og bakið áfram í 20 min.
Setjið aftur í ofninn í nokkrar mín. ef pæið er hlaupkennt í miðjunni.

Látið kólna. Berið fram með ís eða rjóma

Karrýsíld og rúgbrauð. Sigríður Laufey Gunnarsdóttir bakaði rúgbrauð og útbjó karrýsíld. Það er bráðsniðugt að smyrja rúgbrauðssamlokur og skera þær síðan í litla bita. Þá fer smjörið ekki út um allt.

Rúgbrauð:
4 bollar hveiti
4 bollar heilhveiti
4 bollar rúgmjöl
4 tsk lyftiduft
4 tsk matarsódi
4 tsk salt
700 g sýróp
1 ltr súrmjólk eða AB mjólk
½ ltr mjólk
Bakað í 3 klst á 150°C

Karrýsíld:
1 kg mareneruð síld
2 dósir sýrður rjómi
200 g súrar gúrkur
1 msk karrý
4 egg
Gott að láta taka sig í ísskáp í 24klst.

 

Guðrún Gunnarsdóttir kom með kjúklingasalat með geggjaðri balsamikdressingu
4 kjúklingabringur
8 sneiðar beikon
1 rauðlaukur, smátt saxaður
1 krukka fetaostur
1 1/​2 dl kasjúhnetur
1 poki klettasalat
Dressing
1 dl sykur 1 dl balsamik-edik
3 msk. majones
1 dós sýrður rjómi
salt og pipar
Aðferð:
Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið á pönnu. Undir lok eldunartímans skerið beikon í bita og steikið með bringum. Þegar bringurnar eru fulleldaðar og beikonið stökkt, takið pönnuna af hellunni og kælið.
Blandið rauðlauk, fetaosti, kjúklingi, beikoni, kasjúhnetum og klettasalati saman í skál.
Gerið dressinguna. Sjóðið sykur og balsamik-edik í potti þar til sykurinn bráðnar og kælið. Hrærið majones og sýrðan rjóma saman í skál og bætið balsamik-blöndunni saman við. Saltið og piprið.
Hellið dressingunni saman við salatið. Mér þykir gott að láta lítið magn af dressingunni í byrjun og kýs að bera hana frekar fram með salatinu. Þá getur hver og einn bætt dressingu út á salatið að eigin smekk.
Uppskrift af síðunni Gulur, rauður, grænn og salt.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.