![Snittubrauð með kjúklingasalati Snittubrauð með kjúklingasalati kjúklingur sweet chili sósa KJÚKLINGASALAT salat með kjúklingi](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2018/11/untitled-4.jpg?resize=472%2C709&ssl=1)
Snittubrauð með kjúklingasalati – Þetta brauð má bera fram hvort er heldur heitt eða kalt.
— KJÚKLINGUR — SALÖT — KJÚKLINGASALÖT —
.
Snittubrauð með kjúklingasalati
1 snittubrauð
1 steiktur kjúklingur, skorinn smátt
1/2 b Sweet chili sósa
1 tsk karrý
1 b rifinn cheddar ostur
1/4 b gráðaostur
2 vorlaukar saxaðir
steinselja til skrauts.
Steikið kjúklinginn og saxið hann smátt og setjið í skál. Bætið við sósunni, karrý, cheddar osti og helmningnum af vorlauknum. Dreifið yfir snittubrauðið. Bakið við 180°C í um 8 mín.
Takið úr ofninum og stráið yfir gráðaosti og vorlauk yfir.
![Snittubrauð með kjúklingasalati Snittubrauð með kjúklingasalati](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2018/11/untitled-3.jpg?resize=472%2C709&ssl=1)
.
— KJÚKLINGUR — SALÖT — KJÚKLINGASALÖT —
— SNITTUBRAUÐ MEÐ KJÚKLINGASALATI —
.