Uppþvottavélar – nokkur tandurhrein atriði

Uppþvottavélar - nokkur tandurhrein atriði Uppþvottavélar - nokkur tandurhrein atriði. Uppþvottavélar eru langt frá því að vera nýjar af nálinni. Hin bandaríska Josephine Garis Cochrane er höfundur fyrstu uppþvottavélarinnar og fékk einkaleyfi á uppfinningu sinni árið 1886. Uppþvottavélar eru hið mesta þarfaþing en þær þarf að umgangast á ákveðinn hátt og ekki má þvo allt í þeim. Stundum er gott að nýta sér hraðprógrammið en æskilegt er að láta vélina ganga reglulega á lengsta prógramminu. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
Uppþvottavélina þarf að þrífa reglulega, það geta safnast óhreinindi í síuna og meðfram hurðinni og í framhaldinu kemur mikill fnykur.

Uppþvottavélar – nokkur tandurhrein atriði

Uppþvottavélar eru langt frá því að vera nýjar af nálinni. Hin bandaríska Josephine Cochrane er höfundur fyrstu uppþvottavélarinnar og fékk einkaleyfi á uppfinningu sinni árið 1886. Uppþvottavélar eru hið mesta þarfaþing en þær þarf að umgangast á ákveðinn hátt og ekki má þvo allt í þeim. Stundum er gott að nýta sér hraðprógrammið en æskilegt er að láta vélina ganga reglulega á lengsta prógramminu. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.

ÝMISLEGTÞVOTTURÍSLANDÍSLENSKT

Uppþvottavélar - nokkur tandurhrein atriði Hraðprógramm. Þegar við erum að flýta okkur er upplagt að skola vel í uppþvottavélina og setja á hraðprógramm. Þegar til lengri tíma litið gengur ekki að þvo einungis á hraðprógrammi. Leirtauið og annað nær ekki að verða nógu skínandi hreint og hætta er á að fita safnist í síuna og niðurfallið.

Hraðprógramm

Þegar við erum að flýta okkur er upplagt að skola vel í uppþvottavélina og setja á hraðprógramm. Þegar til lengri tíma litið gengur ekki að þvo einungis á hraðprógrammi. Leirtauið og annað nær ekki að verða nógu skínandi hreint og hætta er á að fita safnist í síuna og niðurfallið.

Uppþvottavélar Hraðprógramm. Þegar við erum að flýta okkur er upplagt að skola vel í uppþvottavélina og setja á hraðprógramm. Þegar til lengri tíma litið gengur ekki að þvo einungis á hraðprógrammi. Leirtauið og annað nær ekki að verða nógu skínandi hreint og hætta er á að fita safnist í síuna og niðurfallið.

Ofnahreinsir mosey Vandaður þvottur. Til að fá sem bestan þvott er gott að skola það sem á að þvo vel. Bursta af með köldu/volgu rennandi vatni, áður en sett er í vélina. Mín vél hitar vatnið í 55°C það það tekur hana hálfan annan tíma að ljúka. Með því verður leirtau, bollar, hnífapör og annað tandurhreint. Þegar vélin er búin að þvo og tilkynnir mér það með því að senda mér tóninn, þá opna ég hana strax, dreg grindurnar út og þerri ofan af bollum, glösum og öðru ef þar. Læt rjúka eins og sagt er.
Um það bil einu sinni í mánuði tek ég bakaraofninn og hreinsa hann vel. Spreyja í hann ofnahreinsi og læt standa í um 30 mín. Eftir það fer ég með pottavír á skúffur og grindur ef þarf og tek það mesta. Set síðan í uppþvottavélina á lengsta prógrammið.

Vandaður þvottur

Til að fá sem bestan þvott er gott að skola það sem á að þvo vel. Bursta af með köldu/volgu rennandi vatni, áður en sett er í vélina. Mín vél hitar vatnið í 55°C það það tekur hana hálfan annan tíma að ljúka. Með því verður leirtau, bollar, hnífapör og annað tandurhreint. Þegar vélin er búin að þvo og tilkynnir mér það með því að senda mér tóninn, þá opna ég hana strax, dreg grindurnar út og þerri ofan af bollum, glösum og öðru ef þar. Læt rjúka eins og sagt er.

Extra þvottur

Það er mjög æskilegt að láta uppþvottavélar ganga lengsta prógrammið við og við. Um það bil einu sinni í mánuði tek ég bakaraofninn og hreinsa hann vel. Spreyja í hann ofnahreinsi og læt standa í um 30 mín. Eftir það fer ég með pottavír á skúffur og grindur ef þarf og tek það mesta. Set síðan í uppþvottavélina á lengsta prógrammið. Á meðan vélin mallar fer ég með pottavírinn í ofninn og hreinsa hann svo vel á eftir. Þegar uppþvottavélin hefur lokið sér af tek ég það sem er eftir af óhreinindum á grindum og skúffum með pottavír og skola svo vel. Nokkrum sinnum á ári fer sigtið úr viftunni fyrir ofan eldavéina í extraþvottinn.

Nokkur atriði:
-Það er mjög óæskilegt að opna uppþvottavélar á meðan á þvotti stendur
-Muna að skola sigtið reglulega
-Þrífa meðfram hurðinni reglulega
-Ef vélin er ekki alveg full er ágætt að hvolfa ofnskúffunni yfir og þvo hana með.
-Þvo uppþvottaburstann reglulega í uppþvottavélinni.
-Skolum alltaf matarleifar af áður en við setjum í vélina.
-Ef þið eruð að þvo létt plastmál eða -box er ágætt að leggja grindina úr ofninum yfir svo þau feykist ekki um alla vél.
-Látið uppþvottavélina reglulega á „fullt” prógramm. Það losar fitu og annað úr affallinu.
-Matar- og kaffistell með gyllingu þola fæst fullt prógramm með mikilli sápu.
-Beittir hnífar í vélina? Já það er í lagi að setja beitta hnífa í uppþvottavélina, passa verður að hnífarnir séu skorðaðir vel svo bitið fari ekki úr þeim ef þeir nuddast við stál eða annað.

Hvað má ekki fara í uppþvottavélina? Teflonpottar og -pönnur, ferðakaffimál, trébretti, koparpottar og -pönnur.

Edik eða ekki edik?

Edik er í tísku sem hreinsiefni um þessar mundir og sumir mæla með að nota það í stað þvottaefnis í vélina. Það er nú ekki æskilegt að gera það reglulega. Edik hefur ætandi áhrif á gúmmíið í vélinni. Stöku sinnum er þó í lagi að þvo með ediki.

UPpþvottavélar niðurfallið Extra þvottur. Það er mjög æskilegt að láta uppþvottavélar ganga lengsta prógrammið við og við. Um það bil einu sinni í mánuði tek ég bakaraofninn og hreinsa hann vel. Spreyja í hann ofnahreinsi og læt standa í um 30 mín. Eftir það fer ég með pottavír á skúffur og grindur ef þarf og tek það mesta. Set síðan í uppþvottavélina á lengsta prógrammið. Á meðan vélin mallar fer ég með pottavírinn í ofninn og hreinsa hann svo vel á eftir. Þegar uppþvottavélin hefur lokið sér af tek ég það sem er eftir af óhreinindum á grindum og skúffum með pottavír og skola svo vel. Nokkrum sinnum á ári fer sigtið úr viftunni fyrir ofan eldavéina í extraþvottinn.
Síuna í uppþvottavélinni þarf að hreinsa reglulega

MIKILVÆGT:

Uppþvottavélina þarf að þrífa reglulega, það geta safnast óhreinindi í síuna og meðfram hurðinni og í framhaldinu kemur mikill fnykur. Sían er einfaldlega tekin úr og þrifin vandlega með heitu sápuvatni.

.

ÝMISLEGTÞVOTTURÍSLANDÍSLENSKT — 

— TANDURHREIN UPPÞVOTTAVÉLAATRIÐI —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.