![Ræktið hvítlauk í blómapotti í glugganum Hvítlaukur í blómapotti Ræktið hvítlauk í blómapotti í glugganum](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2019/02/IMG_E7450.jpg?resize=696%2C762&ssl=1)
Ræktið hvítlauk í blómapotti í glugganum. Það er ótrúlega auðvelt að rækta hvítlauk í blómapotti. Hann er einfaldlega tekinn í sundur og geirunum stungið í moldina með mjóa endann upp. Myndin var tekin sléttri viku eftir að ég setti geirana í moldina. Upp vaxa mjóir grænir angar sem minna á graslauk. Síðan er klippt ofan af þeim og notað alveg eins og venjulegur hvítlaukur.