
Bananabrauð
Bogga frænka mín á Núpi í Berufirði bauð upp á þetta undurgóða bananabrauð þegar hún hristi fram úr erminni „lítilræði” með kaffinu
.
— VILBORG FRIÐRIKSDÓTTIR — BANANABRAUÐ — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI — KAFFIBOÐ — BERUFJÖRÐUR — BANANAR —
.
BANANABRAUÐ
1/2 bolli sykur
1 bolli hveiti
2 stappaðir bananar
1 egg
1/2 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
Öllu hrært saman í hrærivél og bakað í ca. 35 min við 180°C. Og hér er lykilatriði að nota vel þroskaða banana.

🍌
— VILBORG FRIÐRIKSDÓTTIR — BANANABRAUÐ — BRAUÐ — KAFFIMEÐLÆTI — KAFFIBOÐ — BERUFJÖRÐUR — BANANAR —
🍌
Sæll Albert. Ég er svona dellukarl varðandi matseld og fleira í þeim dúr. Ég var að skoða síðurnar þínar og finnst þær skemmtilegar og á örugglega eftir að nota mér efni af þeim.
Með góðri kveðju
Heiðar Kristinsson
Comments are closed.