Útivist, hreyfing, líkamsrækt

hreyfing líkamsrækt mataræði svefn elísabet reynisdóttir ESJA ESJAN beta reynis páll bergþórsson bergþór pálsson arnar grant esjan esjusteinn hjólreiðar sund fjallgöngur matur hollur dagleg hreyfing
Hjólreiðar eru hluti af daglegri hreyfingu

Útivist, hreyfing, líkamsrækt

Ætli það sé ekki hollur matur, hreyfing og góður svefn sem skiptir okkur hvað mestu máli. Allt þarf þetta að vera í ákveðnu jafnvægi. Við finnum sjálf hvað aukin hreyfing gerir okkur gott. Það er mikilvægt að hver og einn finni þá hreyfingu sem hentar best. Það er ekki vænlegt að stunda líkamsrækt sem fólk finnur sig ekki í. Við breytumst ár frá ári, það sem hentaði fyrir tíu árum hentar kannski ekki í dag. Aðalmálið er að hreyfa sig, stunda líkamsrækt. 

.

HREYFINGHOLLUR MATURPÁLL BERGÞÓRSSONESJAN

.

Viðmiðið er að ná upp að Esjusteini á innan við 50 mín.

Sjálfur var ég kominn hátt á þrítugsaldur þegar ég fór að stunda fjallgöngur. Þær hentuðu mér vel og henta ennþá vel. Reglulega geng ég upp að Steini í Esjunni til að sjá í hversu góðu formi ég er. Viðmiðið er að komast þangað upp á undir 50 mín. Annars finnst mér ágætt að hafa hreyfinguna fjölbreytta yfir sumarmánuðina vil helst stunda hana undir berum himni. Auk þess að stunda fjallgöngur geng ég mikið, hleyp, hjóla og syndi.

Páll á Esjunni á 94 afmælisdegi sínum

Tengdapabbi, Páll Bergþórsson, var kominn á níræðisaldur þegar hann hóf að stunda reglulega líkamsrækt. Daglega gerir hann morgunæfingar liggjandi í rúminu og þegar sólin er hæst á lofti reimar hann á sig gönguskóna og gengur í góðan hálftíma með göngustafina. Já og svo gekk hann langleiðina upp að Steini á Esjunni á 94. ára afmælisdaginn sinn og fór í fallhlífarstökk þegar hann var 95 ára.

Æskileg hreyfing fullorðinna eru 30-45 mín. daglega

Heilsa okkar er verðmæt, bæði andleg og líkamleg. Gott er að minna sig reglulega á að við erum að stórum hluta ábyrg fyrir eigin heilsu. Hluti af því að viðhalda góðri heilsu er að hreyfa sig daglega, huga að mataræði, sofa vel og umgangast fólk sem hefur góð og jákvæð áhrif á okkur.

Fyrir morgunhana er skemmtilegast að fara í Esjugöngu fyrir allar aldir.

Í vetur æfðum við Bergþór reglulega í World Class og nutum þar afar góðrar leiðsagnar Arnars Grant

🚴‍♂️

HREYFINGHOLLUR MATURPÁLL BERGÞÓRSSONESJAN

— ÚTIVIST – HREYFING — LÍKAMSRÆKT —

🚴‍♂️

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.