Auglýsing
Einfaldasta og besta súkkulaðimúsin - steinunn bergsteinsdóttir þóra fríða sæmundsdóttir súkkulaðieftirréttur aðeins tvö hráefni
Einfaldasta og besta súkkulaðimúsin – aðeins tvö hráefni

Súkkulaðimús

Í uppskriftahefti sem Steinunn Bergsteinsdóttir gaf út fyrir einhverjum áratugum, í tengslum við vinsæl námskeið sem hún hélt, er þessi ljúffenga og sáraeinfalda súkkulaðimús. Þóra Fríða var á námskeiði hjá Steinunni og hefur oft útbúið súkkulaðimúsina góðu síðan þá og meðal annars um daginn þegar hún bauð okkur í mat.

— ÞÓRA FRÍÐASÚKKULAÐIMÚSEFTIRRÉTTIR

Auglýsing

.

Súkkulaðimús

1/2 l rjómi, þeyttur

200 g extra dökkt súkkulaði (yfir 70% kakóinnihald)

Bræðið súkkulaðið og hellið saman við þeytta rjómannn. Skiptið í litlar skálar og látið stífna í kæli í nokkra klukkutíma.

Þetta er sparidesert

Einfaldasta og besta súkkulaðimúsin

.

— ÞÓRA FRÍÐASÚKKULAÐIMÚSEFTIRRÉTTIR

— EINFALDASTA OG BESTA SÚKKULAÐIMÚSIN —

.