Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði

Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði páskaterta páskatertur döðlukaka döðlubotn marengs eplarjómi mynta minta súkkulaði páskar
Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði

Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði

Páskatertan í ár er alveg ótrúlega góð, mjúkur döðlubotninn og epla/marengsrjóminn sem gæti staðið einn og sér sem eftirréttur með piparmintusúkkulaðinu. Það þarf ekkert að kæla tertuna eftir að hún hefur verið sett saman. Gott að hafa marengsinn svolítið stökkann.

PÁSKATERTURPÁSKARTERTURDÖÐLUTERTUR

.

Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði

Döðlubotn:

1 bolli döðlur
3 msk matarolía
ca 1,5 dl vatn
2 msk. hveiti
tæpur bolli kókosmjöl
100 g dökkt súkkulaði, saxað gróft
2 egg
2/3 tsk salt
smá chili
1 tsk lyftiduft

Saxið döðlur frekar gróft og setjið í skál með olíu og vatni og látið standa í um 20 mín. Bætið öllum hráefnunum saman við og hrærið saman, þynnið með vatni eins og þarf. Bakið við 175°C í 20 – 25 mín.

Púðursykurmarengs:
4 eggjahvítur
1 b púðursykur
1 tsk edik
Stífþeytið eggjahvítur og sykur, bætið ediki við í restina. Setjið á bökunarpappír og bakið við 110° C í 2 klukkutíma. Látið kólna.

Ofan á:
1/2 l rjómi
2 gul epli
safi úr 1/2 sítrónu
Stífþeytið rjómann, saxið eplin smátt og kreystið sítrónusafa yfir. Blandið saman við rjómann. Brjótið marengsinn og blandið honum saman við. Setjið á döðlubotninn

Ofaná tertuna:
100 g piparmintusúkkulaði + 1 msk olía
Bræðið í vatnsbaði og látið leka yfir kökuna.

Döðluterta með marengseplarjóma og piparmintusúkkulaði

.

 — PÁSKATERTURNAR Á ALBERT ELDAR —

— DÖÐLUTRETA MEÐ MARENGSEPLARJÓMA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.