Sumarlegt kjúklingasalat

Fáskrúðsfjörður akranes kópavogur KRYDDLÖGUR brauð ástríðualdin hollustubrauð husk kjúklingur mangó gróft brauð einfalt salat sumarlegt hollt einfalt fljótlegt Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, Sara Lind Traustadóttir, Harpa Ágústsdóttir, Garðar Logi Ólafsson, Ólafur Atli Sigurðsson, Hrönn Önundardóttir Ármey Alba Eggertsdóttir, Hörður Freyr Valbjörnsson, Erna Guðrún Stefánsdóttir, Halldór Kristinn, Freyja Lind Ólafsdóttir, Mikael Ólafsson og Heiða Björg Valbjörnsdóttir hafnarfjörður akranes fáskrúðsfjörður hrafnista
Sumarlegt kjúklingasalat sem er innblásið af uppskrift frá Evu Laufey

Hrönn Önundardóttir er fædd, uppalin og búsett í Kópavogi. Hún og Ólafur Atli eiga stóra fjölskyldu og líf og fjör þegar þau hittast.
Hjúkrunarfræðingurinn Hrönn starfar sem deildarstjóri á Hrafnistu í Hafnarfirði „það er algjörlega skemmtilegasti og besti vinnustaður sem ég hef verið á. Það svífur svo mikil hlýja og mennska inni á heimilinu – við erum eins og lítið þorp úti á landi, það kannast allir við alla, allir heilsast og bera umhyggju fyrir næsta manni. Ég tel mig mjög heppna að hafa lagt leið mína á Hrafnistu.”

.

SALÖTSUMAR…FÁSKRÚÐSFJÖRÐURBRAUÐ

.

Hrönn hefur langst af búið í Kópavogi þó með smá viðkomu á Akranesi og Fáskrúðsfirði.

Hrönn finnst næstum allur matur góður, það er ef hann er ferskur = ómeðhöndlaður. Hún borðar sjaldan unnar eða forkryddaðar matvörur og meginuppistaðan í matnum hennar hefur alltaf verið grænmeti. „Ég byrjaði mjög snemma að prófa mig áfram við grænmetisfæði og baunarétti, löngu áður en það varð vinsælt hérlendis. Mér er sérstaklega minnistætt fyrir 17 árum þegar ég bauð uppá baunarétt og hráköku í saumaklúbb. Eitthvað gekk lítið á veitingarnar og mörgum árum síðar viðurkenndu vinkonur mínar að þetta hefði verið alverstu veitingar sem þær hefðu nokkurntíman smakkað. Fyrir 3 árum gerði ég nákvæmlega sama mat og köku fyrir þennan sama vinkonuhóp og ég hafði verið með 15 árum áður. Þær gerðu þessu öllu góð skil og lofsömuðu frammistöðu mína. Svona breytast áherslurnar og matarsmekkur fólks 😉 ”

Sumarlegt kjúklingasalat – Fyrir 4-6

700 g kjúklingur (eða 4 bringur)
1 poki spínat
½ – 1 poki klettasalat
1 askja  kirsuberjatómatar – skornir í tvennt eða fernt
2 avocadó – skorin í stóra teninga. Kreystið sítrónusafa yfir og saltið. Látið standa í 10-15 mín.
1 mangó- skorið í litla bita
sítróna (kreyst yfir avókadóið og restin yfir salatið í lokin)
ristaðar kasjúhnetur
bláber
passion fruit – fræin
Fetaostur í olíu
1-2 bollar soðið og kælt kínóa (soðnir í ca 7-10 mín eftir að suðan kemur upp – ekki gott ef þeir maukast)

Kryddlögur á kjúkling

Rifinn börkur af einni sítrónu
2-3 rautt chili – fræhreinsað
1 laukur
125 ml hnetusmjör
1 msk karrý
150 ml Grísk jógúrt
4 msk hreinn rjómaostur
Allt sett í mixara og mixað vel. Takið hluta af soppunni frá og geymið til að nota sem sósu (sósan líka góð með grillmat). Ef sósan er of sterk má bæta í hana meira af grískri jógúrt
Kjúklingurinn lagður í kryddlöginn í ½ – 1 sólahring. Steiktur á pönnu, í ofni eða grillaður, kældur og svo skorinn í hæfilega bita. Gott er að skafa mesta kryddlöginn af áður en kjúklingurinn er settur á pönnu eða grill. Ef er ofnbakað er bara gott að hafa kryddlöginn með í fatinu.
Salatinu raðað í víða skál: fyrst er sett grænt salat svo kínóa og blandað létt saman. Þá er tómötum og mangó dreift yfir svo kjúklingi og avocado. Þá er berjum og fræjum stráð yfir og síðast ristuðum kasjúhnetum.

Gróft hollustubrauð „uppskriftin er úr einhverju blaði”

Gróft hollustubrauð

3 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
2 dl heslihnetuflögur
6 dl tröllahafrar
2 dl hörfræ
1 dl husk (psylluium fræskurn/gróft duft)*
½ dl chia-fræ
½ dl hlynsíróp
⅔ dl ólífuolía
½ lítri vatn

Ristið sólblómafræ og graskersfræ á pönnu. Setjið í skál. Léttristið heslihnetuflögurnar og blandið saman við. Setjið þá restina af hráefnunum saman við í skálina og blandið vel saman. Það er ágætt að nota hendurnar til þess að kreista deigið saman þannig að það þéttist. Smyrjið stórt form með olíu og jafnið deiginu í það. Setjið filmu yfir og látið þetta standa í nokkrar klst. við stofuhita, eða í kæliskáp yfir nótt. Bakið við 190°C í um klst. Látið brauðið kólna alveg áður en það er skorið. *Husk fæst í apótekum og heilsubúðum

Afmælisgestir Hrannar: Sigurður Harðarson, Ágústa Sigrún, Sara Lind, Harpa, Garðar, Atli, Hrönn, Ármey, Hörður, Erna Halli, Freyja. Fyrir framan eru Mikael og Heiða
Hjónin Hrönn og Ólafur Atli hella freyðivíni í glösin. „Við Atli kynntumst á Fáskrúðsfirði árið 2007. Það sem tengdi okkur saman til að byrja með var ferðaáhugi. Hann var þá að plana ferð til Afríku og göngu á Kilimanjaro en ég hafði farið þannig ferð nokkrum mánuðum áður. Við höfum gengið sama veg síðan við hittumst fyrst og þvælst saman innanlands og utan með gönguhópum eða keyrandi með tjaldvagn eða tjald og lent í ýmsum skemmtilegum ævintýrum. Annað sameiginlegt áhugamál okkar eru mótorhjól og finnst okkur fátt dásamlegra en finna frelsið og friðinn þegar við keyrum fákana okkar úti í sveit.”
Skál við Hrönn afmælisbarn dagsins

„Uppáhaldsstaðurinn minn er Jökulsárgljúfur – Ásbyrgi, Hljóðaklettar, Hvannalindir, Dettifoss. Þarna hef ég komið margoft, þar er hægt að finna margar gönguleiðr sem hentar vel að fara með börn en líka lengri leiðir. Bergmyndunin, jökulvatnið, bergvatnið og gróðurinn kemur mér endalaust á óvart. Ég finn alltaf frið og ró færast yfir mig þegar ég kem þarna og ég fyllist endalausri orku, gleði og þakklæti fyrir að vera hér og nú.”

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.