Smjördeigsbakstur ömmu Ragnheiðar

Aftari röð frá vinstri: Elín Hrefna Thorarensen(móðir Ragnheiðar Elínar), Alma Tryggvadóttir, Svala Thorarensen, Katrín Erla Thorarensen, Helga Hrefna Bjarnadóttir og Þórunn Erna Clausen. Fremst Ragnheiður Elín Clausen og Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Ragnheiður Hafstein Thorarensen Ragnheiður Elín Clausen smjördeig tómatsósa aspas rasp ostur
Smjördeigsbakstur ömmu Ragnheiðar

Ragnheiður Elín Clausen bauð nokkrum dömum úr fjölskyldunni í léttan vorhitting á pallinum. Meðal margra góðra veitinga var fjölskyldu-kaffimeðlætið sem er frá móðurömmu Ragnheiðar og nöfnu: Ragnheiði Hafstein Thorarensen – réttur sem er og hefur verið í öllum afmælum. Sáraeinfaldur og ótrúlega góður smjördeigsbakstur með osti, aspas, tómatsósu, raspi og paprikudufti.

.

SMJÖRDEIGASPASRASP

.

Aftari röð frá vinstri: Elín Hrefna Thorarensen(móðir Ragnheiðar Elínar), Alma Tryggvadóttir, Svala Thorarensen, Katrín Erla Thorarensen, Helga Hrefna Bjarnadóttir og Þórunn Erna Clausen. Fremst Ragnheiður Elín Clausen og Ragnheiður Erla Bjarnadóttir.

Smjördeigsbakstur ömmu Ragnheiðar

Einni smjördeigsrúllu rúllað út og bökuð við 200°C í um 6-8 mín. Takið úr ofninum. Þekið botninn með grænum aspas úr dós (2 dósir), síðan með rifnum Ísbúaosti, dreifið tómatsósu yfir, ekki of þunnt og ekki of þykkt lag.
Dreifið Paxo raspi yfir og loks svolítið paprikuduft
Bakið í 15-20 mín eða þar til osturinn er farinn að bráðna aðeins undir.
Voila, einfaldara gæti þetta ekki verið.

Albert með afmælisbarninu Ragnheiði Elínu
Ragnheiður Elín með smjördeigsbaksturinn góða
Bresk heslihnetukaka

Bresk heslihnetuterta

Ragnheiður Erla Bjarnadóttir kom með undurgóða súkkulaðitertu í afmæli nöfnu sinnar og frænku. Uppskriftin er úr Foods of the World: England – The Cooking of the British Isles frá Time Life, aðlagað íslenskum kringumstæðum.
Ragnheiður Erla keypti bókina í Eymundsson fyrir meira en fjörtíu árum og hefur oft bakað tertuna.

Bresk heslihnetukaka

Botn:
250 gr heslihnetur með hýði
200 gr suðusúkkulaði
100 gr hveiti
125 gr eða 1/2 lítið smjörstykki, lint, við stofuhita
200 gr sykur
1/2 tsk vanilludropar
7 egg: skilja að rauður og hvítur

Setjið heslihnetur í bökunarofn við 150°C með blæstri í 30 mínútur hið minnsta eða þar til orðnar ristaðar. Láta hneturnar kólna.

Pakkið inn í stórt viskastykki og nuddið húðina vel af.
Setja milli 150-200 gr af heslihnetunum í matarvinnsluvél og malið þær fínt.
Því næst er súkkulaðinu bætt út í og verður þetta að mauki í vélinni.
Smyrjið eitt „springform“ með bræddu smjöri eða bökunarspreyi.
Klippið til smjörpappír og leggið í botninn.
Smyrjið pappírinn og setjið hveiti að innan í allt formið.
Hrærið saman smjöri og sykri, notið hrærispaðann og einni tsk af hveiti bætt út í.
Bætið vanilludropum út í og svo eggjarauðunum, einni í einu.
Þegar búið er að hræra eggjarauðunni saman við er hveitinu bætt við, tæp 100 gr. Bætið súkkulaði-heslihnetumaukinu við og öllu blandað saman.
Deigið er fært úr skálinni og sett í aðra skál og hrærivélaskálin þvegin.
Stífþeytið eggjahvíturnar, takið 1/4 af hvítunum og setjið í deigið og þeytt vel saman.
Hellið súkkulaði-heslihnetudeiginu í hrærivélaskálina og blandið varlega saman við hvíturnar.
Farið varlega og blandið eins lítið og hægt er að komast upp með, nettar hreyfingar fram og tilbaka. Mikilvægt er að passa þetta svo að kakan falli ekki saman því það er ekki lyftiduft í uppskriftinni.
Hellið deiginu í formið og bakið við 150-160°C (185°C ef ekki er blástur) og bakið í 1 klukkustund og 15 mínútur.
Látið kólna áður en kremið er sett á.

Krem:

100 g flórsykur
4 msk kalt vatn
200 g suðusúkkulaði
2 1/2 tsk af sterku nýlöguðu kaffi
Setjið öll efnin saman í pott. Hitið þar til súkkulaðið er bráðið og blandið öllu vel saman. Látið standa í 10-15 mín.
Hellið kremi yfir kökuna og láta storkna.
Skreytið með afgangi af heslihnetunum.

.

SMJÖRDEIGASPASRASP

— SMJÖRDEIGSBAKSTUR ÖMMU RAGNHEIÐAR —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.