PARTÍ Í ÞYKKVABÆ. Í Oddsparti í Þykkvabæ hefur bráðskemmtilegri hugmynd verið hleypt af stokkunum. Hópar geta komið á matreiðslunámskeið og hægt er að velja um t.d. Gamla Ísland, Nýja Ísland o.s.frv. En fyrst og fremst er þetta gaman! Við lentum á hópi frá Dalvík og það var ekki leiðinlegt. Við héldum að við værum að fara á formlegt námskeið, en eftir að skipt var í hópa og byrjað að vinna saman, voru öll formlegheit á bak og burt. Eins og gerist í skemmtilegum hópum, færðist húmorinn fljótlega aðeins neðar nær beltisstað og það var mikið hlegið.
Hins vegar er allt geysilega vel undirbúið hjá þeim hjónum, Hrönn og Þórólfi, en þau áttu Kaffi Loka og lumuðu á sérlega góðum uppskriftum. Þau byrjuðu á að sýna okkur dæmi um gamla Ísland, heimabakað rúgbrauð með Mývatnssilungi frá Skútustöðum og flatbrauðið var glóðað á staðnum. Dæmi um nýja Ísland kom verulega á óvart, en það voru steiktir sláturstrimlar með hoisin sósu. Eiginlega var maður kominn á tælenskan veitingastað í huganum. Hóparnir fóru svo að elda (og hlæja)!).
— HLÖÐUELDHÚSIÐ — FERÐAST UM ÍSLAND — HLÖÐUELDHÚSIÐ Á FB –
Það kom á óvart hvað stemningin var mikil og meira eins og skemmtun en námskeið og er óhætt að mæla með því fyrir hópa sem vilja koma og skemmta sér og ef vill er hægt að gista á Hótel Vos.
Við ferðaþríeykið viljum gjarnan heyra frá ferðaþjónustufólki
Djúpsteiktar gellur með tartarsósu
250 g hveiti
3 – 4 dl pilsner
Hnefafylli steinselja, söxuð
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. sjávarsalt
2 tsknýmalaður pipar
1 kg. gellur úr þorski
Olía til djúpsteikingar
Hreinsið gellurnar vel og klippið burt slímugar himnur. Þerrið vel.
Blandið öllu saman í þykka soppu. Hitið olíu í þykkbotna potti eða pönnu og djúpsteikið gellurnar þar til þær eru fallega gylltar. Setjið í ofn í 2-3 mín áður en borið er fram.
Tartarsósa
200 gr. mayonnaise
50 gr. capers (þvegið og þurrkað) og saxað smátt.
50 gr. litlar gúrkur saxaðar smátt
2 stk. steinselja, söxuð
salt og pipar
sítrónusafi
Blandið öllu saman og leyfið að brjóta sig í nokkrar mínútur
Forrétturinn settur saman og borinn fram.
— —
Eggaldinhringur
Forréttur fyrir 15 manns
Eggaldin 3 stk.
Salt
Brauðraspur eða polenta
Fylling
1 kg. Kartöflur soðnar eða ofnbakaðar, kældar, skrældar og marðar
Olía til steikingar
9 hvítlauksrif söxuð smátt.
60 g engifer skrældur og saxaður smátt.
3 chilli fræhreinsuð og söxuð smátt.
3 teskeiðar cummin fræ
1 ½ teskeið turmeric
1 ½ teskeið chili duft
Koriander, vænar lúkur tvær
Byrjið á að skera hvert eggaldin í 5 jafn stóra hringi úr breiðasta parti eggaldsins, skerið síðan innan úr hverjum hring þannig að um 7 mm fallegur hringur stendur eftir.
Skerið það sem var innan í og restin af eggaldinunum í litla teninga, saltið og látið bíða í nokkrar mínútur.
Þurrkið.
Nú þarf að huga að fyllingunni.
Hitið olíu á pönnu og látið cummin fræ útá og bíðið þar til þau byrja að poppa, lækkið þá hitann og bætið hvítlauki útá og steikið í 20 sec. Bætið við engifer og chilli og hrærið vel svo ekki brenni við. Steikið í 1 mín. Bætið við eggaldinteningum, turmeric og chilidufti og hræristeikið saman í nokkrar mínútur. Bætið við ½ dl af vatni og steikið áfram í nokkrar mín. Bætið við mörðu kartöflunum og saltið létt og hrærið öllu vel saman. Bætið við söxuðum kóriander og setjið allt í skál og leyfið að kólna smá. Geymið smá kóriander til að skreyta.
Takið nú eggaldin hringi og þerrið og setjið á bretti. Fyllið hvern hring með fyllingu þannig að verði sléttfullt. Takið beittan hníf og skerið fína skurði í hringina þannig að þeir steikist betur.
Setjið hringina í brauðmylsnu eða polentu. Hitið olíu á pönnu og steikið hvern hring þannig að þeir verði fallega gullnir. Setjið á ofnplötu. Þegar allir hringirnir eru tilbúnir skal undirbúa sósuna og taka til diska.
Hringina má halda heitum í smá stund í ofni þar til kemur að borðhaldi.
Sinneps og jógúrt chutney