Oft hefur maður stoppað við Jökulsárlón og misst andardrátt eða tvo yfir hrikalegri fegurðinni sem er aldrei eins frá morgni til kvölds. En nú prófuðum við að fara með Icelagoon.is – Jökulsárlón.is í Zodiac spíttbát um lónið og það er margföld upplifun! Okkur hafði alltaf fundist þetta svolítið túristalegt, en þeir fordómar hurfu út í buskann. Að átta sig á umfanginu, – lónið er30 ferkílómetrar, – hitta spaka seli með saklausu, forvitnu augn sín, sem liggja í sólbaði uppi á smærri jökum, komast alveg upp að jöklinum, hlusta á kyrrðina og pínulítið brak í jöklinum af og til, þetta er stórkostlegt!
—ICELAGOON.IS — HORNAFJÖRÐUR — FERÐAST UM ÍSLAND —

Skrýtið, við tímum oft ekki að kaupa okkur ferðaþjónustu á Íslandi fyrir örfáa þúsundkalla, en förum svo til útlanda, bíðum kannski í endalausri röð til að kaupa dagspassa í Disneyland eða eitthvað á kannski 15,000 kall. Öfugsnúið?
Óli, leiðsögumaðurinn okkar og spíttbátsstjóri var lifandi og var með allar staðreyndir á hreinu. Eitt af því sem kom á óvart var að fyrir 100 árum náði jökullinn þangað sem brúin er núna, en hefur hopað um u.þ.b. 8 km. Umhugsunarefni. En það var líka grínast og öllum spurningum svaraði Óli liðlega.
Segi nú bara, drífið ykkur meðan ferðamennirnir eru heima hjá sér. Þetta er geggjuð upplifun.