![Hornafjörður höfn brunnhóll jöklaís beint frá býli heimagerður ís sveitagisting gistiheimili gisting nálægt höfn](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2020/07/IMG_2214.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
„Þeir eru búnir að borða átta ískúlur!” sagði strákurinn á næsta borði við pabba sinn í þegar við smökkuðum allar tegundirnar sem voru í boði þann daginn á Brunnhóli þar sem er framleiddur Jöklaís. Það sem strákurinn, sem heitir Eiríkur, vissi ekki er að um kvöldið borðuðum við á Ósnum á Hótel Höfn og bættum þar við fjórum ískúlum. Sem sagt FJÓRTÁN ÍSKÚLUR á stuttum tíma. Það má segja að ísinn á Brunnhóli sé alveg þráðbeint frá býli, ísinn er framleiddur í næsta húsi úr kúm fjölskyldunnar.
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2020/07/IMG_2227.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)
Vanillurjómaís, Bailesy´sís, Piparmyntuís, kókosís með fylltum lakkrísbitum, Pistasíu ís, súkkulaðiís, draumaís, fíflaís og hindberjaís
Á Brunnhóli er einnig Gistiheimilið Brunnhóll
— BRUNNHÓLL — JÖKLAÍS — HORNAFJÖRÐUR —FERÐAST UM ÍSLAND —
![](https://i0.wp.com/alberteldar.is/wp-content/uploads/2020/07/IMG_2217.jpg?resize=696%2C522&ssl=1)