Dúllað svepparisottó hjá Hildigunni Einars

Hildigunnur einarsdóttir söngkona sono matseljur veganveisla veganveisluþjónusta Albert risottó með sveppum svepparisottó
Hildigunnur og Albert

Dúllað svepparisottó hjá Hildigunni Einars

Hildigunnur Einarsdóttir er afar flink í eldhúsinu. Hún er með veisluþjónustuna Sono matseljur, ásamt Sillu Knudsen vinkonu sinni og þær sérhæfa sig í vegan- og grænmetisveislum. Hildigunnur er af miklu matarkyni komin, dóttir Jóhönnu V. Þórhalldóttur og segja má að þær séu báðar landsfrægar fyrir fagran söng og góðan mat.

HILDIGUNNUR EINARSRISOTTÓEFTIRRÉTTIRPAPRIKURJÓHANNA ÞÓRHALLS

.

Risottó með sveppum, granateplum og bláberjum, risottó sem Hildigunnur hefur þróað og dúllað mikið við

Risottó með sveppum

Eitt box Flúðasveppir (eða þeir sveppir sem eru spennandi)
100 g smjör
5 msk ólífuolía
Timian, rósmarín eða Herbes de provence
2 tsk bláberjasulta
½ laukur (rauðlaukur)
¼  fennel
3-4 gulrætur
4 hvítlauksrif
½ rauður chilli eða þurrkaðar chilliflögur
2,5 dl Arborio hrísgrjón
½ flaska hvítvín
1,5 dl af góðu grænmetissoði

Bragðbætir:
Ferskt eða þurrkað timian
Lime börkur
Salt og pipar
Ristaðar heilar heslihnetur
Þurrkaðir villisveppir eru gómsætir ef völ er á

Steikið eitt box af sveppum upp úr smjöri og timian. Þegar þeir hafa dregið í sig smjörið er tilvalið að pipra og salta vel. Etv gott að setja smá bláberjasultu út í. Setjið til hliðar.

Skerið hálfan lauk, 3 gulrætur, tvö lauf af fennel, 3 hvítlauksrif smátt

Bræða 2 msk smjör og setja 3 msk ólífuolíu í stóran pott, og hvítlaukinn strax úti til að hann hitni með

Steikja laukinn, gulræturnar og fennel við vægan hita og salta og pipra

bæta 1 bolla (u.þ.b. 2, 5 dl) af arborio hrísgrjónum út í og steikja með þar til þau byrja að verða örlítið glær

Þá má byrja að hella hvítvíni saman við, einn dl í einu. Ég kaupi oft litla flöskur af ágætis hvítvíni til að eiga í ísskápnum til að gera risotto. Mér finnst þá gott að nota heila svoleiðis flösku. Þegar hvítvínið er gufað upp má fara að setja gott grænmetissoð út í (er með 1, 5 l með 2-3 teningum)- einnig smátt og smátt, dl eða minna í einu. Hræra vel þegar vökvinn er kominn út í. Passa að ekkert brenni í botninum.

Hér má dúlla við risottoið, og fara að setja timian, lime börk, salta og pipra betur. Ef það verður of salt finnst mér gott að setja jafnvel örlítið hunang eða bláberjasultu (þegar ég er með sveppa). Sveppirnir geta farið út í líka á þessu stigi. Ef þú þolir ekki salt má nota vel af lime eða sítrónu berki.

Þegar risottoið hefur áferð að þínum smekk hrærirðu 2-3 dl af parmesan osti saman við.

Borið fram t.d. með meiri parmesan, lime berki, timian grein,  örlitlu krækiberjasafti eða ristuðum heslihnetum, nú eða bara öllu.

Balsamsírópslegin jarðarber með rjómaostakremi. Hildigunnur dvaldi veturlangt í París með Siggu vinkonu sinni strax eftir menntaskóla. Þar þróaðist eftirréttur í bohemlífinu.

Balsamsírópslegin jarðarber með rjómaostakremi

Eitt stórt box af jarðarberjum (u.þ.b. 300 g)
6 msk af góðu balsamediki
3 msk af sykri eða sætu af eigin vali.
Látið jarðarberin standa í amk 2 tíma í ísskáp í balsamsírópinu

Krem

200 g rjómaostur
3 msk hlynsíróp
½ tsk vanilludropar eða fræ úr hálfri vanillustöng
2 tsk appelsínubörkur
1 msk safi úr appelsínu

Borið fram með limeberki og basilikkulaufi ef vill

Grillaðar paprikur
Grillaðar paprikur. Skerið paprikuna, saltið, penslið 3 msk ólífuolía yfir og 2 msk rauðvínsedik. Setjið í 220 gráðu heitan ofn í 10 min – eða þar til hún er aðeins farin að sortna á endunum.

RISOTTÓEFTIRRÉTTIRPAPRIKURJÓHANNA ÞÓRHALLS

— DÚLLAÐ SVEPPARÍSOTTÓ HJÁ HILDIGUNNI EINARS —

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.