Auglýsing
Bjúgnakrækir jólasveinn íslensku jólasveinarnir
Bjúgnakrækir.                                                              Mynd: ARCTIC PORTAL

Bjúgnakrækir

Bjúgnakrækir er níundi jólasveinninn. Hann kemur til manna þann 20. desember samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.

Bjúgnakrækir var fimur að klifra og sat gjarnan upp í ráfri eldhúsa og graðgaði í sig bjúgu.

Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:

Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.

Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.

Af WIKIPEDIA

JÓLIN

Bjúgnakrækir jólasveinarnir íslensku jólasveinn leppalúðason

Bjúgnakrækir

Í gær kom SKYRGÁMUR og á morgun kemur GLUGGAGÆGIR.

— BJÚGNAKRÆKIR —

Auglýsing