Rúgbrauðstertan – verðlaunaterta

Rúgbrauðsterta selfoss bryndís brynjólfsdóttir bökunarkeppni verðlaunaterta Anna Guðný guðmundsdóttir sigurður ingvi rúgbrauð terta íslensk terta kaffimeðlæti súkkulaði
Rúgbrauðstertan sem Anna Guðný og Sigurður Ingvi bökuðu

Rúgbrauðstertan

Heiðurshjónin Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvi Snorrason eru miklir sælkerar og bæði tvö flink í eldhúsinu. Þau baka reglulega rúgbrauðstertuna frægu eins og mamma Önnu, Aagot Árnadóttir, sem hefur boðið upp á hana í áratugi við mikla ánægju fjölskyldunnar.

Rúgbrauðstertan vann til verðla

Af Tímarit.is: Árið 1967 héldu Johnson & Kaaber og Pillsbury Best bökunarkeppni. Vel á fjórða hundrað uppskriftir bárust. Bryndís Brynjólfsdóttir á Selfossi sigraði með rúgbrauðstertu.
„Foreldrar mínir annast rekstur Tryggvaskála og ég hef bakað fyrir hótelið í þó nokkur ár. Þessa uppskrift fékk ég hjá vinkonu minni, ég veit ekki hvaðan hún fékk hana.”

RÚGBRAUÐANNA GUÐNÝRÚGBRAUÐSTERTURSELFOSSTERTURBANANARTIMARIT.IS

.

Rúgbrauðstertan

Rúgbrauðstertan

Botn
4 egg
200 g sykur
125 g rúgbrauð, rifið
1 msk kartöflumjöl
60 g hveiti
1 1/2 tsk lyftiduft

Fylling
1-2 bananar, skornir í sneiðar
3 rifin epli
safi úr 1/2 sítrónu
50 g rifið súkkulaði
2 dl rjómi, þeyttur

Skreyting
2 dl rjómi, þeyttur
súkkulaði.

Botn: Þeytið vel saman eggjum og sykri. Bætið við rúgbrauði, kartöflumjöli, hveiti og lyftidufti. Bakið í tertuformi við 200°C í 10-15 mín. Látið kólna.

Fylling: Blandið öllu saman við þeytta rjómann og setjið yfir tertuna.

Skreyting: Setjið rjómann yfir og á hliðarnar og skreytið með súkkulaði.

Rúgbrauðstertan

.

RÚGBRAUÐANNA GUÐNÝRÚGBRAUÐSTERTURSELFOSSTERTURBANANARTIMARIT.IS

— RÚGBRAUÐSTERTAN —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.