Rabarbara- og sveskjusulta

Rabarbara- og sveskjusulta sulta sultutau rabarbarasulta sveskjusulta rabarbari sveskjur rabbabari rabbabarasulta
Mjúk og bragðgóð rabarbara- og sveskjusulta

Rabarbara- og sveskjusulta

Hún kom þægilega á óvart sultan sem varð til við að sjóða saman rabarbara og sveskjur. Sultan passar afar vel í hjónabandssælu og fínasta tilbreyting með lambahryggnum/lærinu.

RABARBARASULTARABARBARISVESKJURHJÓNABANDSSÆLALAMBAHRYGGUR

.

Rabarbara- og sveskjusulta

1 kg rabarbari
500 g sveskjur
500 g sykur
1/3 tsk salt

Hreinsið rabarbarann, skerið niður og setjið í pott. Brytjið sveskjur frekar smátt og bætið við í pottinn ásamt sykri, salti og smá vatni. Sjóðið án loks þangað til sultan er passlega dökk á litinn.

.

RABARBARASULTARABARBARISVESKJURHJÓNABANDSSÆLALAMBAHRYGGUR

— RABARBARA- OG SVESKJUSULTA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.