Steiktir þorskhnakkar með Hollandaise sósu

Smjörsteiktir þorskhnakkar með lauk og papriku, bornir fram með kartöflumús, strengjabaunum og silkimjúkri Hollandaise-sósu

0
Auglýsing
steiktir þorskhnakkarþorskhnakkar í smjöri smjörsteiktur þorskur þorskhnakkar á pönnu þorskhnakkar með Hollandaise þorskhnakkar með Hollandaise-sósu þorskur með Hollandaise Hollandaise sósa uppskrift Hollandaise-sósa frá grunni klassísk Hollandaise frönsk smjörsósa eggjarauður og smjör sósa vatnsbað Hollandaise hvernig gerir maður Hollandaise Hollandaise klikkar ekki Hollandaise án mixara silkimjúk Hollandaise smjörsósa með sítrónu sítrónusósa með smjöri þorskuppskrift þorskur í pönnu þorskur í raspi þorskur velta upp úr eggi og hveiti hveitihjúpaður fiskur fiskur í smjöri íslenskur þorskur ferskur þorskur þorskhnakkar uppskrift bestu þorskhnakkar hvernig á að steikja þorsk hvernig veit ég að þorskur er tilbúinn safaríkur fiskur gullinbrúnn fiskur kartöflumús heimagerð kartöflumús með smjöri kartöflumús með rjóma loftkennd kartöflumús mjúk kartöflumús meðlæti með fiski strengjabaunir með fiski soðnar strengjabaunir grænar baunir með smjöri einfalt meðlæti með þorski laukur og paprika í smjöri mallaður laukur smjörsteikt paprika sætt steikt grænmeti hægsteiktur laukur paprika á pönnu smjör og meira smjör smjör í matargerð smjörbragð bragðmikið smjör The secret to life is butter Gerard Depardieu Last Holiday myndin matarsetning úr kvikmynd frönsk matarmenning franskur matur og smjör Þingeyri Þingeyri Dýrafjörður Dýrafjörður Vestfirðir Vestfirðir matur matur á Vestfjörðum gamli spítalinn á Þingeyri hús frá 1908 sögulegt hús á Vestfjörðum bæjarprýði Þingeyri Svala Lárusdóttir Davíð Pitt matarmenning á Vestfjörðum heimaboð á Vestfjörðum íslensk matargerð hefðbundinn íslenskur fiskur íslenskar fiskuppskriftir fiskréttur í sunnudagsmat hátíðarmatur með fiski boðsmatur með þorski gestaboð með fiski veislumatur með þorski klassískur fiskréttur fiskréttur með sósu þorskur og smjör þorskur og sítróna þorskur og eggjarauður þorskur með franskri sósu fiskur í lúxusútgáfu fínn fiskréttur matarblogg íslenskt íslenskt matarblogg fiskur uppskrift að þorskhnökkum heimilislegur fiskréttur gamaldags fiskréttur nostalgískur fiskréttur hvernig á að gera vatnsbað eggjarauður yfir vatnsbaði hvernig þykkir maður sósu emulsering smjör og egg klassísk frönsk tækni sósa sem skilur sig ekki þorskur fyrir byrjendur einföld fiskuppskrift fljótlegur fiskréttur helgarmatur föstudagsfiskur sunnudagssteik fiskur heimilismatur með fiski mjúkur fiskur flögandi þorskur fiskur sem bráðnar í munni rík og smjörkennd sósa sósa sem rennur yfir fisk Ísland íslenskur sjávarfang norðurslóðamatur hefð og smjör íslenskt hráefni hreint hráefni Albert eldar fisk matarupplifun á Vestfjörðum heimilisleg matarveisla íslenskur heimilismatur Steiktir þorskhnakkar með strengjabaunum, kartöflumús og Hollandaise sósu svala davíð pitt david pitt þingeyri dýrafjörður gamli spítalinn fiskur steiktur steiktir þorskhnakkar þorskhnakki steiktur fiskur
Steiktir þorskhnakkar með strengjabaunum, kartöflumús og Hollandaise sósu

Steiktir þorskhnakkar með Hollandaise sósu

Hjónin Svala Lárusdóttir og Davíð Pitt keyptu fyrir nokkrum árum eitt elsta húsið á Þingeyri við Dýrafjörð og endurgerðu það á glæsilegan hátt svo það er nú orðin sannkölluð bæjarprýði. Húsið þeirra – gamli spítalinn á Þingeyri – var reist árið 1908 og starfrækt sem sjúkrahús í tæpa hálfa öld.

Þar var boðið upp á dýrindis smjörsteikta þorskhnakka sem brögðuðust einstaklega vel. Með þeim voru strengjabaunir, mjúk og létt kartöflumús og silkimjúk Hollandaise-sósa. Smjör og meira smjör 🙂

Auglýsing

Yfir borðhaldinu rifjuðum við upp skemmtilega setningu úr kvikmyndinni Last Holiday þar sem Gerard Depardieu segir með sínum þykka franska hreim: “The secret to life is butter.”
Það átti svo sannarlega við þarna.

ÞINGEYRIFISKRÉTTIR — DÝRAFJÖRÐUR ÞORSKURFISKUR Í OFNIHOLLANDAISE

.

Útsýnið úr borðstofunni er yfir höfnina á Þingeyri

Steiktir þorskhnakkar

Þorskhnökkunum var velt upp úr þeyttu eggi og síðan hveiti. Þeir voru kryddaðir með salti og pipar og steiktir á pönnu í ríkulegu smjöri þar til þeir urðu gullinbrúnir og safaríkir.

Ofan á var settur laukur og paprika sem höfðu verið látin malla rólega í smjöri við lágan hita í dágóða stund, þar til grænmetið varð mjúkt, sætt og ilmandi.

Hollandaise-sósa

5 eggjarauður
250 g smjör, brætt
u.þ.b. 1 msk sítrónusafi
salt og pipar

Setjið eggjarauðurnar í hitaþolið ílát og setjið það yfir pott með heitu vatni (vatnsbað). Vatnið á að ná að suðumarki en alls ekki að bullsjóða.

Pískið stöðugt og gætið vel að hitanum. Hellið brædda smjörinu hægt og rólega saman við í mjórri bunu á meðan þið pískið. Þegar allt smjörið hefur blandast við skal halda áfram að píska þar til sósan þykknar og verður mjúk og glansandi.

Bætið sítrónusafa saman við og smakkið til með salti og pipar.

Smjörsteiktir þorskhnakkar með lauk og papriku

.

ÞINGEYRIFISKRÉTTIR — DÝRAFJÖRÐUR ÞORSKURFISKUR Í OFNIHOLLANDAISE

.

Fyrri færslaFullkomin uppskrift að góðu lífi – er hún til?
Næsta færslaMannasiðir – karlmennska og kurteisi á nýrri öld