Gulrótaterta

Mjúk og safarík gulrótaterta með rjómaostakremi

2
Auglýsing
Gulrótaterta Gulrótakaka terta ananas kanill gulrætur gulrótaterta kaka terta kakagulrótaterta uppáhalds kaka uppáhalds terta gulrætur í tertu gulrætur í bakstur gulrótakaka gulrótarterta með smjörkremi gulrótarterta með rjómaosti klassísk gulrótaterta heimagerð gulrótaterta saðsöm gulrótaterta gulrótaterta með ananas gulrótaterta með ananaskurli gulrótaterta með kanil gulrótaterta með minni sykri minni sykur í tertum hollari gulrótaterta gulrótakaka án mikils sykurs góð kaffikaka kaka með gulrótum kaka með rjómaostakremi kaka með smjörkremi kanilterta heimabökuð kaka klassísk kaffikaka kaka fyrir kaffiboð kaka fyrir gesti besta gulrótatertan uppskrift af gulrótatertu gulrótatertu uppskrift einföld gulrótaterta bakað með gulrótum bakað með ananas sælgæti með kaffinu heimilisleg kaka kaka fyrir sunnudagskaffi
Gulrótaterta

Gulrótaterta

Það er fátt sem slær við vænni sneið af gulrótartertu. Hún er heimilisleg, mjúk og alltaf jafn notaleg – alveg sama hvort hún er borin fram með kaffibolla síðdegis eða sem eftirréttur.
Ég hef áður nefnt að oft megi draga aðeins úr sykri í tertum án þess að fórna bragðinu – og hér er það sannarlega raunin. Ég minnkaði sykurmagnið bæði í kökunni og í kreminu, og svei mér þá ef útkoman verður ekki bara enn betri.

Eitt skal þó aldrei spara: kanilinn. Hafið teskeiðarnar vel fullar, takk fyrir 😄

Auglýsing

— GULRÓTAKÖKURANANASGULRÆTUR

.

Gulrótaterta

Gulrótaterta

1 bolli hveiti
1/2 bolli heilhveiti
1/2 bolli sykur
1 tsk matarsódi
2 tsk kanill
1/2 tsk múskat
1 tsk lyftiduft
3/4 bolli góð matarolía
1 bolli rifnar gulrætur
2 egg
1/2 tsk salt
1 lítil dós ananaskurl (látið safann renna vel af).

Hitið ofninn í 170°C.
Blandið öllum þurrefnunum saman í skál. Í annarri skál eru egg og sykur þeytt vel saman þar til blandan er ljós og létt.
Bætið þurrefnunum út í eggjablönduna og hrærið varlega saman. Hellið þá matarolíunni út í og blandið vel. Að lokum eru rifnar gulrætur og ananaskurl sett út í og öllu blandað saman þar til jafnt er.
Hellið deiginu í smurt form og bakið í um 40 mínútur, eða þar til prjónn sem stungið er í miðjuna kemur hreinn út.

Krem
150 g rjómaostur
1 msk mjúkt smjör
1/2 tsk vanilludropar
3/4 bolli flórsykur
1/3 tsk salt

Þeytið allt saman þar til kremið er mjúkt og slétt. Smyrjið því yfir kælda kökuna – ríkulega, ef ykkur er annt um ykkur sjálf 😌

Fleira áhugavert:

–  Matarborgir  –  Epli  –  Pasta  – Klúbbaréttir  –  Miðjarðarhafið  – Appelsínur  –

Fyrri færslaMatarmikil Mexíkósúpa
Næsta færslaRicciarelli – ítalskar möndlukökur

2 athugasemdir

  1. Langaði til að gefa þér smá hugmynd varðandi kremið. Ég set alltaf appelsínubörk og amaretto í kremið og það kemur alveg dásamlega út.

  2. ég bæti alltaf sólblómafræjum í mína gulrótarköku-það er mjög gott ! 🙂

Comments are closed.