Mandarínu og sítrónufrómas

Þessi fáránlega góði mandarínufrómas verður nú varla toppaður - sérlega frískandi og ljúffengur eftirréttur. frómas mandarínur eftirréttur matarlím
Þessi fáránlega góði mandarínufrómas verður nú varla toppaður – sérlega frískandi og ljúffengur eftirréttur.

Mandarínu- og sítrónufrómas

Við sem komin erum yfir miðjan aldur erum enn að rifja upp dásamlegan ilm af jólaeplunum í gamla daga, eitthvað sem yngra fólk þarf að hlusta á árlega við mismikla ánægju.

Ætli mandarínur séu ekki um það bil eina ávaxtategundin sem enn er hægt að tengja við árstíð. Flesta aðra ávexti er hægt að fá allt árið um kring.
Njótum og nýtum mandarínurnar eins og við getum og á meðan við getum.

Þessi fáránlega góði mandarínufrómas verður nú varla toppaður – sérlega frískandi og ljúffengur eftirréttur.

—  FRÓMAS — MANDARÍNUR —  EFTIRRÉTTIRMAKKARÓNURJÓLAILMURGAMLA DAGA

.

Skerið ofan af mandarínunum, hreinsið úr þeim – ATH að skilja eftir 2-3 mm lag út við börkinn

Mandarínu- og sítrónufrómas

4 matarlímsblöð
75 g sykur
4 egg
1 sítróna (safi úr heilli og börkur af hálfri)
10 mandarínur
3 dl rjómi

1 dl muldar makkarónukökur

Leggið matarlímið í kalt vatn í nokkar mínútur.
Rífið börkinn af sítrónunni á rifjárni og geymið (ca af hálfri sítrónu).
Skerið ofan af mandarínunum, hreinsið úr þeim – ATH að skilja eftir 2-3 mm lag út við börkinn. Kreistið mandarínusafann og sítrónusafann í skál. Kreistið vatnið úr
matarlímsblöðunum og setjið þau út í safann ásamt sítrónuberkinum. Hitið rólega í vatnsbaði þar til matarlímið er bráðið.
Þeytið egg og sykur vel saman. Hellið mandarínu- og sítrónusafanum smám saman út í og þeytið vel á meðan. Það má alveg setja eins og þriðjunginn af „mandarínukjötinu” saman við.
Stífþeytið rjómann og blandið gætilega saman við með sleikju. Bætið muldu makkarónukökunum síðast saman við.

Setjið frómasinn ofan í mandarínurnar og skreytið.

—  FRÓMAS  — MANDARÍNUR —  EFTIRRÉTTIRMAKKARÓNURJÓLAILMURGAMLA DAGA

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.