Hvert á að setja servíettuna?

Hvað gera á við servíettuna á meðan máltíð stendur og þegar henni lýkur

0
Auglýsing
Servíettan á heima í kjöltunni á meðan setið er til borðs. Að lokinni máltíð er hún lögð snyrtilega vinstra megin við diskinn.

Hvert á að setja servíettuna?

Servíettan á heima í kjöltunni á meðan setið er til borðs. Takið hana rólega úr brotunum, án þess að hrista hana, og leggið hana tvöfalda í kjöltuna. Það er fallegur siður að byrja ekki að borða fyrr en servíettan er komin á sinn stað.

Ef farið er frá borðinu á meðan máltíð stendur, til dæmis á snyrtinguna, er servíettan lögð lauslega á stólinn og stólnum ýtt að borðinu. Sumum þykir einnig við hæfi að leggja hana á stólbakið eða arminn, en aðalatriðið er að hún sé ekki skilin eftir á borðinu eins og máltíðinni sé lokið.

Auglýsing

Að lokinni máltíð er servíettan lögð snyrtilega vinstra megin við diskinn — eða þar sem diskurinn stóð. Ekki þarf að brjóta hana aftur saman; nóg er að leggja hana snyrtilega frá sér.

Servíetta um hálsinn á sjaldnast við, nema þegar borðaður er sérlega „vandræðalegur“ matur, eins og ostrur eða annað sem getur skvest og sullast.

BORÐSIÐIRSERVÍETTAVEITINGA- OG KAFFIHÚS

.

Hvert á ég að setja servíettuna þegar: a. ég fer á klósettið b. máltíð er lokið?
Servíettan lögð í stólinn og honum ýtt að borðinu þegar farið er afsíðis

Fleira áhugavert:

—  Döðlustykki, bragðgóður og mjúkur heilsubiti  –  Saltfiskur í ólífuolíu  —  Póstlistinn  —  Rommkúluterta  — Kókosterta   — Brún lagkaka   — Rúgmjölspartar   — Ásta Snædís býður í kaffi   — Hægeldaðir lambaskankar    —  Steiktur fiskur í brúnni sósu og ávaxtagrautur með rjóma   —  Smákökur Ólafs — 

Fyrri færslaApríkósu- og gulrótamarmelaði
Næsta færslaJarðarberjatiramisu