Ostafrækex

Stökkt og próteinríkt ostafrækex með fræjum – fullkomið hollt snarl milli mála

0
Auglýsing
Ostafrækexið sameinar frábært bragð og hollustu í hverjum bita.

Ostafrækex

Saðsamt, stökkt frækex með rifnum osti er hollt snarl, stútfullt af næringarefnum. Svo er það bæði trefja- og próteinríkt. Fullkomið þegar okkur langar „í eitthvað” milli mála.

Ostafrækexið sameinar frábært bragð og hollustu í hverjum bita.

Auglýsing

FRÆKEXHUSKKEXENGLISH

Ostafrækex

8 dl fræ (sesamfræ, graskersfræ, hörfræ, sólblómafræ…)
3 egg
1 tsk laukduft
1 msk kókosmjöl
1 tsk Husk
1 tsk chiafræ
1 msk oreganó
1/3 tsk salt
2 dl rifinn ostur.

Blandið öllu saman í skál.
Setjið deigið á bökunarpappírsklædda plötu. Setjið bökunarpappír yfir og fletjið út með kökukefli þannig að deigið verða ca 1 cm þykkt.
Bakið við 160°C í 20 mínútur, lækkið þá hitann í 110°C
Takið úr ofninum, snúið við og bakið áfram í um 15 mínútur.

Fleira áhugavert:

Döðlukonfekt, gott, gott —   Fíladelfía, matarborgin — Grafinn lax og graflaxsósa  — Rabarbarasulta  — Humarveisla Önnu Rósu   — Forsetaísinn — Skúffukakan besta — Sítrónu linguine Nigellu — Múffur með eplum og haframjöli — 

Fyrri færslaFinnsson – restaurant
Næsta færslaMagnaður morgungrautur – Overnight oats