Eplakaka ömmu Söllu

Eplakaka ömmu Söllu salla súðavík sólveig ólafsdóttir Hólmfríður guðjónsdóttir eplaterta skólastjóri klaustur kirkjubæjarklaustur græn epli terta kaka úr eplum kanill kanilsykur kaffimeðlæti einfalt fljótlegt
Eplakaka ömmu Söllu  

Eplakaka ömmu Söllu

„Það verður kaffi á brúsanum” sagði Hólmfríður frænka mín skólastjóri á Kirkjubæjarklaustri þegar ég „bauð mér í kaffi” á dögunum. Úr varð hin skemmtilegasta samvera í skólanum með kennurum. Sólveig Ólafsdóttir heimilisfræðikennari skellti í eplaköku og var snögg að því. Á meðan kakan bakaðist útbjó hún nokkrar dýrindis snittur með gröfnu ærkjöti og bláberjasósu.

„Eplakakan er ein af mínum uppáhalds en amma Salla í Súðavík bakaði hana oft fyrir gesti og gangandi þegar ég var að alast upp fyrir vestan. Hún bar kökuna alltaf fram með þeyttum rjóma. Sjálfri fannst mér hún alltaf best hjá ömmu!”

EPLAKÖKURKIRKJUBÆJARKLAUSTURSÚÐAVÍKHÓLMFRÍÐUR

.

Sólveig Ólafsdóttir heimilisfræðikennari skellti í eplaköku og var snögg að því. Á meðan kakan bakaðist útbjó hún nokkrar dýrindis snittur með gröfnu ærkjöti og bláberjasósu.

Eplakaka ömmu Söllu

125 g smjör/smjörlíki
150 g sykur
2 egg
250 g hveiti
2 tsk lyftiduft
1 tsk vanilludropar/vanillusykur
1 1/2 dl mjólk
1-2 græn epli
kanilsykur

Aðferð: Hrærið smjör og sykur vel saman. Því næst er einu eggi í einu hrært saman við.
Þurrefnunum hrært úti og að lokum mjólkinni og vanilludropum.

Setjið deigið í smurt form (sjálf nota ég oftast tvö 20 cm hringform). Skerið eplin í sneiðar og raðið ofan á kökuna, magn eftir smekk og stráið svo kanilsykri yfir allt.

Bakið við 180°C á blæstri í um 25 mín.

Dýrindis snittur með gröfnu ærkjöti og bláberjasósu.

Snitturnar eru útfærsla af forrétti sem ég gerði með nemendum Kirkjubæjarskóla fyrir 10. bekkjarveisluna sem þau héldu í vor í tilefni af útskrift þeirra frá skólanum. Löng hefð er fyrir því í Kirkjubæjaskóla að nemendur sem eru að ljúka 10. bekk bjóði foreldrum sínum, starfsfólki skólans ásamt skólabílstjórum og fleirum í þriggja rétta kvöldverð sem þau matreiða með aðstoð heimilisfræðikennara og/eða umsjónarkennara.

Snittur: Grafið ærkjöt frá Borgarfelli í Skaftártungu með bláberjasósu, klettasalati og ristuðum furuhnetum.

Bláberjasósa: Grísk jógúrt, bláberjasulta og smá hunang eða hlynsýróp. Öllu hrært saman og smakkað til.

Þorbjörg, Albert, Bergþór, Ólafur, Sólrún Ósk og Sólveig
Hólmfríður skenkir frænda sínum kaffi í bolla

EPLAKÖKURKIRKJUBÆJARKLAUSTURSÚÐAVÍKHÓLMFRÍÐUR

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Vöfflur – klassísk uppskrift úr bókinni Við matreiðum

Vöfflur. Fátt er dásamlegra en ilmur af nýbökuðum vöfflum. Það er einhver óútskýrð hlýja sem fylgir þeim. Hér er uppskrif úr hinni ágætu bók Við matreiðum, bók sem ég eignaðist fyrir 35 árum og fletti reglulega upp í. Við matreiðum er hin fínasta bók, hún kom fyrst út árið 1976 og nýlega kom sjötta útgáfan út.

Peruterta, þessi gamla góða

20160830_152036

Peruterta. Í minningunni voru perutertur í öllum barnaafmælum og flestum fermingarveislum í mínu ungdæmi. Botnarnar voru mjúkir og gegnblautir. Þegar ég sá á fasbókinni að Borghildur Jóna var að baka eina slíka fyrir afmæli sonar síns, fékk ég fortíðarþráhyggjukast og bað hana um mynd og uppskrift. Ég bara stóðst ekki mátið.

Hjónabandssæla

Hjónabandssæla

Mjúk og góð hjónabandssæla er góð með kaffinu. Stundum verða hjónabandssælur seigar, kannski vegna þess að þær eru bakaðar of lengi. En eflaust líkar einhverjum að hafa þær seigar.

Fyrri færsla