
Rjómalöguð aspassúpa
Klassísk rjómalöguð aspassúpa – einföld og hátíðleg
Það eru til súpur sem vekja strax upp minningar, ilm og stemningu. Rjómalöguð aspassúpa er ein af þeim – fáguð, mild og áreiðanleg klassík sem hefur fylgt íslenskum heimilum í áratugi og á alltaf vel við, ekki síst sem forréttur á hátíðardögum.
Í ár eru liðin 80 ár síðan Hússtjórnarskólinn á Varmalandi í Borgarfirði hóf starfsemi sína. Þar lærðu kynslóðir að leggja rækt við góða matargerð og vandað handbragð. Veturinn 1978–79 settust þar á skólabekk 32 tápmiklar stúlkur og hluti hópsins kom nýverið saman og eldaði rétti fyrir Húsfreyjuna – þar á meðal þessa klassísku rjómalöguðu aspassúpu.
Þessi rjómalagaða aspassúpa er einföld í gerð og hentar bæði sem forréttur á jólum og við önnur hátíðleg tilefni.
— SÚPUR — ASPAS — SMJÖRBOLLA — VARMALAND — HÚSMÆÐRASKÓLAR — HÚSFREYJAN — BORGARFJÖRÐUR — RJÓMALÖGUÐ —
🥣

Rjómalöguð aspassúpa
3 dósir niðursoðinn aspas í bitum + safinn
1 l vatn
2 teningar kjúklingakraftur
Smjörbolla: 50 g smjör og 50 g hveiti
1/2 l rjómi.
Setjið vatn, aspassafa úr öllum dósunum og kjúklingakraft í pott.
Bætið aspas úr einni dós saman við og maukið með töfrasprota.
Bræðið smjör við vægan hita og hrærið hveiti saman við (smjörbolla).
Þykkið súpuna með smjörbollunni og látið malla í um 20 mínútur.
Bætið rjóma saman við, hitið að suðu og látið malla áfram.
Setjið að lokum restina af aspasinum út í.
Smakkið til með salti og kjúklingakrafti.
— SÚPUR — ASPAS — SMJÖRBOLLA — VARMALAND — HÚSMÆÐRASKÓLAR — HÚSFREYJAN — BORGARFJÖRÐUR — RJÓMALÖGUÐ —
🥣
