
Rabarbari í sykur
Í sumarvinnu minni í Breiðdalnum fórum við með hópana í óvissuferð sem endaði í fjöru, þar var nestið drukkið, farið í leiki og þeim meðal annars kennt að dýfa rabarbara í sykur og borða þannig beint eins og maður gerði í gamla daga. Þetta sló í gegn og í hvert sinn kláraðist rabarbarinn.
Aðferðin er einföld: Rabarbaraleggir eru skornir í hæfilega bita (ca 10 cm), eða hafði heilir. Skinnið pillað af þeim og síðan er rabarbaranum stungið í sykur og borðaður. Ákaflega þjóðlegt (og gott) 😉
— RABARBARI — ÞJÓÐLEGT — ÍSLAND — ÍSLENSKT — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR —
.

.
— RABARBARI — ÞJÓÐLEGT — ÍSLAND — ÍSLENSKT — FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR —
.