
Forréttabarinn
Það er alltaf jafn gaman að fara í miðbæinn, iðandi mannlíf, seiðandi matarlykt út um allt og auðvelt að leggja bílum í næsta bílastæðahús. Þegar við mættum á Forréttabarinn kl. 17 voru þar fyrir nokkrir litlir hópar í rólegheitum, tvær fínar frúr að bera saman bækur sínar yfir hvítvínsglasi, vinnufélagar að slaka á í lok vinnudags, en skyndilega breyttist stemningin í notalegt skvaldur, líf og fjör.
— VEITINGASTAÐIR — HVERFISGATA — ÍSLAND — BERUNES — BERUFJÖRÐUR — PETRÍNA RÓS —
.
Á Forréttabarnum á horni Frakkastígs og Hverfisgötu er nefnilega þrísetið, enda staðurinn með afbrigðum vinsæll. Í útlöndum gæti maður sagt að þetta væri staður þar sem „lókal“ fólkið fer. E.t.v. byggist það á því að við heyrðum ekkert annað en íslensku hjá starfsfólkinu? Ekki að ég hafi neitt á móti starfsfólki sem getur ekki tjáð sig á íslensku, en það er alltaf gaman að finnast maður vera á Íslandi þegar maður fer út að borða.





Þá var komið að aðalréttum sem voru ekki síðri, þó að við værum á Forréttabarnum:






— VEITINGASTAÐIR — HVERFISGATA — ÍSLAND — BERUNES — BERUFJÖRÐUR —
.

