
Grautarlummur
Grautarlummur eru einföld og ljúffeng leið til að nýta afganga af hafragraut eða grjónagraut. Í stað þess að henda grautnum er honum blandað í hefðbundið lummudeig – og útkoman verður mjúkar, safaríkar og örlítið seigar lummur sem henta bæði í morgunmat og með kaffinu.
Þetta er fínasta hugmynd sem á fullt erindi í nútímaeldhús – góð nýting, gott bragð og enginn sóun.
Edda Pétursdóttir í Sjólyst á Fáskrúðsfirði steikir reglulega grautarlummur eftir uppskrift Önnu Einarsdóttur tengdamóður sinnar. Það var frekar regla en undantekning þegar Anna var í Sjólyst þá byrjaði hún daginn á að útbúa hafragraut fyrir heimilisfólkið og afgangurinn var notaður í grautarlummur með síðdegiskaffinu.
— LUMMUR – SJÓLYST – FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR – EDDA PÉTURSDÓTTIR – ANNA EINARSDÓTTIR – RABARBARASULTA – HAFRAGRAUTUR –
.



Ef grauturinn er mjög þykkur má þynna hann aðeins með mjólk áður en hann er settur í deigið. Einnig má bæta við rúsínum, epli eða kanil til að gefa lummunum meira karakter.
Berið grautarlummurnar fram heitar með smjöri og sultu – eða jafnvel smá sírópi. Þetta er heimilislegt og notalegt á sinn besta hátt.

– LUMMUR – SJÓLYST – FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR – EDDA PÉTURSDÓTTIR – ANNA EINARSDÓTTIR – RABARBARASULTA – HAFRAGRAUTUR –
.
