Fíladelfía – matarborgin

Frá klassískri cheesesteak til lifandi og fjölbreyttrar matarmenningar

0
Auglýsing
Skyline Fíladelfíu séð frá Comcast Technology Center
Á efstu hæð í Comcast Technology Center, sem er hæsta byggingin í Fíladelfíu, rúmlega 340 metra hár skýjakljúfur sem rís yfir borgina og markar nýjan kafla í skyline hennar. 60 hæðir takk fyrir.

Frá cheesesteak til lifandi og fjölbreyttrar matarmenningar

Þegar matarmenning í Fíladelfíu í Bandaríkjunum er skoðuð kemur ostasteikarsamlokan fyrst upp í hugann – Philly cheesesteak. Hún er matarmikil og ljúffeng og til í óteljandi útgáfum, en grunnurinn er einfaldur: gott brauð, steikt nautakjöt og bræddur ostur.

En Fíladelfía hefur miklu meira upp á að bjóða en þessa klassísku samloku. Borgin er lifandi matarparadís þar sem fjölbreytt menning og hefðir mætast á diskinum – allt frá gamla sjarmerandi ítalska markaðnum til nútímalegra veitingastaða og líflegra matarmarkaða.

Auglýsing

Við vorum svo ljónheppnir að kynnast Larry og Kate á Íslandi síðasta sumar og þáðum heimboð þeirra til Fíladelfíu – vorum eins og prinsar í stórborginni. Það gefur heimsókn eins og þessari alveg sérstakt gildi að fá innsýn og ráð frá heimafólki sem þekkir borgina út og inn.

MatarborgirBandaríkinFíladelfía

🇺🇸

Cheesesteak hin fræga ostasteikarsamlokan
Okkur var boðið í Passover-matarveislu þar sem lesið og sungið var úr Haggadah. Það var eftirminnilegt og afar áhugavert að taka þátt í allt öðruvísi matarveislu og siðum.
Okkur var boðið í Passover-matarveislu þar sem lesið og sungið var úr Haggadah. Það var eftirminnilegt og afar áhugavert að taka þátt í allt öðruvísi matarveislu og siðum.

Páskahátíð gyðinga, passover (Pesach) er ein mikilvægasta trúarhátíð gyðinga og minnir á frelsun þeirra úr ánauð í Egyptalandi, eins og sagt er frá í Gamla testamentinu. Hátíðin stendur yfir í átta daga og hefst með hátíðarmáltíð sem kallast Seder, þar sem sérstök táknræn fæða er borin fram og sagan um brottförina rifjuð upp. Á meðan á gyðingapáskum stendur forðast fólk súrdeig og borðar í staðinn ósýrt brauð, svokallað matza. Hátíðin leggur áherslu á frelsi, minningu og samveru fjölskyldunnar og hefur djúpa trúarlega og menningarlega merkingu.

Reading Terminal Market

Italian Market og Reading Terminal – matarmarkaðir.

Italian Market – líflegur útimarkaður fullur af ferskum mat og stemningu. Einn elsti og líflegasti útimarkaður í Fíladelfíu og hefur starfað samfellt frá lokum 19. aldar. Þar má finna allt frá fersku grænmeti og kryddum til kjöts, osta og ítalskra sérvara, auk fjölbreytts „street food“. Markaðurinn endurspeglar fjölmenningu borgarinnar í dag, þó að rætur hans liggi í ítalska innflytjendasamfélaginu, og er frábær staður til að rölta, smakka og upplifa daglegt líf borgarbúa.

Reading Terminal Market er hins vegar innimarkaður og einn þekktasti matarmarkaður Bandaríkjanna. Þar er að finna fjölda sölubása sem bjóða upp á allt frá klassískum Amish-réttum til alþjóðlegrar matargerðar. Andrúmsloftið er líflegt og ilmandi, og auðvelt að týna sér á milli bása þar sem freistingarnar eru á hverju horni. Þetta er fullkominn staður til að smakka sig áfram og kynnast fjölbreyttu matarflórunni í Philadelphia.

Parc Bistro við Rittenhouse torgið. Þar fengum við einstaklega safaríkan kjúkling og pastarétt með hörpuskel.
Vernick Fish á Four Seasons. Algjör toppstaður í hæstu byggingu Fíladelfíu. Þarna fengum við nokkra fiskrétti sem voru hver öðrum betri. Þarna brugðum við okkur líka upp á guð má vita hvaða hæð og fengum í hnén (bara smá).
Bergþór, Albert, Kate, Chris og Larry á Vernick fish á Four seasons
Við Rocky styttuna

Rocky og tröppurnar frægu. Meira en hálfri öld eftir að hið goðsagnakennda atriði í Rocky var tekið upp eru tröppurnar fyrir framan Philadelphia Museum of Art enn gríðarlega vinsælar. Í atriðinu hleypur Sylvester Stallone upp tröppurnar, lyftir höndum til sigurs og festir borgina um leið í sessi sem tákn um seiglu og baráttuanda.
Efst stendur stytta af Rocky, sem margir líta á sem óopinbert tákn borgarinnar. Gestir gera sér gjarnan ferð þangað til að endurtaka atriðið, hlaupa upp, lyfta höndum og taka mynd – og það gerðum við að sjálfsögðu. Heimamenn segja jafnvel að tröppurnar séu vinsælli áfangastaður en Spænsku tröppurnar í Róm.

Larry og Kate á Barnes listasafninu

Barnes Foundation er eitt merkilegasta listasafn Bandaríkjanna og sannkölluð perla í Fíladelfíu. Safnið byggir á safni læknisins og listunnandans Albert C. Barnes, sem safnaði ótrúlegu magni verka eftir helstu meistara 19. og 20. aldar. Þar má meðal annars sjá verk eftir Pierre-Auguste Renoir, Paul Cézanne og Henri Matisse.
Það sem gerir Barnes-safnið einstakt er að verkunum er raðað upp nákvæmlega eins og Barnes gerði það sjálfur: ekki eftir tímabilum eða listamönnum, heldur í svokallaðar „ensembles“, þar sem málverk, húsgögn og skrautmunir mynda heildstæða sjónræna upplifun. Þetta gerir heimsóknina bæði persónulegri og lifandi en í hefðbundnum listasöfnum.
Barnes listasafnið er ómissandi viðkomustaður fyrir alla sem hafa áhuga á list og menningu.

Frægir frá Fíladelfíu: Grace Kelly, Patti LaBelle, Billie Holiday, Benjamin Franklin, Will Smith og Kevin Hart.

Viltu vita meira?
Hér eru fleiri staðir og upplifanir sem við mælum með:

👉 New York – matur og upplifun í stórborginni
👉 Matarborgir – fleiri áfangastaðir
👉 Bandaríkin – eitt og annað.

Ostabúð á ítalska markaðnum.

Fíladelfía kom skemmtilega á óvart – borg sem sameinar sögu, menningu og frábæran mat á einstakan hátt.

In English
Philadelphia Food Guide: From Cheesesteak to Local Markets

Philadelphia is a true food city, best known for its iconic Philly cheesesteak – a hearty sandwich made with bread, thinly sliced steak, and melted cheese. While simple at its core, it comes in countless variations and remains a must-try when visiting the city.

But there is much more to Philadelphia’s food scene than cheesesteak. From the historic Italian Market to the vibrant Reading Terminal Market, the city offers a rich and diverse culinary experience shaped by many cultures and traditions.

We were fortunate to experience Philadelphia with locals, which added a special dimension to the trip – discovering not just the food, but the stories and atmosphere behind it.

MatarborgirBandaríkinFíladelfía

🇺🇸

Fyrri færslaSítrónu linguine Nigellu
Næsta færslaNew York – matarborgin