Kubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti

Gamaldags og notalegur lambaréttur sem mallar hægt og verður ómótstæðilega mjúkur

0
Auglýsing
Kubbasteik - togarasteik Kubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti hægeldað hægeldun kubbasteik uppskrift ⭐ (aðal – focus keyphrase)kubbasteik togarasteik uppskrift hægeldað lambakjöt lambakjöt í ofni lambakjöt með grænmeti hægeldað lambakjöt í ofni íslenskur heimilismatur pottsteik lambakjöt
Kubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti

Kubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti

Gamaldags og notalegur lambaréttur sem mallar hægt og verður ómótstæðilega mjúkur

Það er fátt sem jafnast á við ilminn af lambakjöti og grænmeti sem mallar hægt saman í potti. Kubbasteik er einmitt þannig réttur – einfaldur í grunninn, en fullur af hlýju, minningum og góðu bragði.

Auglýsing

Í raun er kubbasteik ekkert annað en steiktir súpukjötsbitar og grænmeti í einum potti, en um leið er hún svo miklu meira. Það er ekki til ein rétt uppskrift – þessi réttur þróast frá heimili til heimilis og hver og einn setur sitt mark á hann. Sumir bæta við þessu, aðrir hinu, en niðurstaðan er alltaf notaleg og seðjandi.

Mér finnst best að hafa nóg af grænmeti og leyfa því að njóta sín með kjötinu – gulrætur, lauk, papriku, rótargrænmeti og það sem til er hverju sinni. Og svo er það galdurinn: að hægelda lambakjötið þar til það verður svo meyrt að það dettur af beinunum. Þá verður rétturinn alveg ómótstæðilegur.

Það þarf í raun ekkert meðlæti – grænmetið í pottinum sér alveg um það. En ef maður vill gera vel við sig, þá er erfitt að slá góðri kartöflumús við. Og svo er það gamla góða snilldin: smá rabarbarasulta með lambinu – hún lyftir bragðinu upp á næsta stig.

Hér á bæ köllum við þetta yfirleitt togarasteik, sem hefur alltaf haft einhvern sérstakan sjarma. En eins og svo oft með íslenska alþýðurétti, þá ber þessi réttur ótal nöfn. Í hópnum Gamaldags matur á Facebook hefur hann verið nefndur meðal annars: allt-í-steik, alþýðusteik, bitasteik, borgarsteik, bóndasteik, kubbasteik, kreppusteik, letisteik, ofnsteik, pottsteik, rónasteik, skipasteik, smalasteik, spítalasteik, sveitasteik, sjóarasteik, togarasteik, trukkasteik, verkamannasteik og ömmusteik.

Kannski er það einmitt það sem gerir kubbasteik svona heillandi: hún er ekki bara réttur – hún er hefð, sveigjanleiki og heimilisleg hlýja í einum potti.

KJÖTRÉTTIRHÆGELDUNGRÆNMETI

.

Paprika, sætar kartöflur, blaðlaukur, sellerý, rauðlaukur og chili

Kubbasteik – hægeldað lambakjöt með grænmeti í einum potti

1,5–2 kg súpukjöt (lambakjöt)
Hveiti (til að velta upp úr)
Olía til steikingar
Grænmeti, t.d.:
kartöflur
sætar kartöflur
gulrætur
sellerý
hvítkál
rauðlaukur
paprika
1 msk rósmarín
1 msk timían
Nokkur lárviðarlauf
Salt og nýmalaður pipar.

Veltið kjötbitunum upp úr hveiti og kryddið létt með salti og pipar.
Hitið olíu á pönnu og brúnið kjötið vel á öllum hliðum þar til það fær fallegan lit.
Setjið kjötið í eldfast mót eða pott með loki.
Skerið grænmetið í grófa bita og dreifið yfir kjötið.
Stráið rósmaríni, timían og lárviðarlaufum yfir.
Setjið lok á og í ofn við 180°C í um 1 klukkustund.
Lækkið hitann í 75°C og látið réttinn malla rólega í 3–4 klukkustundir, eða þar til kjötið er orðið svo meyrt að það losnar af beinunum.
Hækkið hitann aftur í lokin (í ca. 200°C í 10–15 mínútur) til að fá fallega áferð og smá ristingu á yfirborðið. Takið lokið af til að fá kjötið brúnna.

Lítil ráð: Gott er að bæta smá vatni eða krafti í botninn (1 dl) svo ekkert brenni
Má líka setja örlítið smjör yfir í lokin fyrir meiri fyllingu.

Það sem til er: Kubbasteik er hinn fullkomni „hreinsa ísskápinn“ réttur. Þú getur auðveldlega breytt grænmetinu eftir því sem er til hverju sinni – rótargrænmeti, kúrbítur, sveppir eða jafnvel blómkál passa vel með.

Meira bragð/fyllingu: Bættu við 1–2 dl af rauðvíni í pottinn eða notaðu góðan kjötkraft

Fallegri litur og áferð: Taktið lokið af og hækkið hitann í lokin eða setjið réttinn undir grill í nokkrar mínútur

Krydd: Það má alveg leika sér með kryddin; hvítlaukur, paprika

Meðlæti: Þó rétturinn standi vel einn og sér, þá er sérstaklega gott að bera hann fram með: kartöflumús, grænum baunum, rabarbarasultu eða einföldu grænu salati.

Eins og með kjötsúpuna: jafnvel betri daginn eftir .

KjötréttirHægeldunGrænmeti

.

Fyrri færslaNew York – matarborgin