
Björg Þórhalls og Hilmar Örn bjóða heim
Þegar Björg Þórhallsdóttir söngkona bjó með nokkrum íslenskum námsmönnum á Lowman Road í London á fyrstu árum aldarinnar, þar á meðal Braga syni okkar, fórum við í Afternoon Tea á Ritz og létum eins og við værum algjörir heimsborgarar með hálstau og alles. Þá var greinilegt að hún var matgæðingur.
– Sítrónupasta – Pasta – Rabarbari – Afternoon Tea –
.
Seinna giftist hún Hilmari Erni Agnarssyni organista og þau eru sannkallaðir höfðingjar heim að sækja. Fyrir nokkrum árum keyptu þau sumarbústað við Hafravatn, breyttu honum í glæsilegt heilsárshús og búa nú þar í sveitasælunni. Þau hafa lyft Grettistaki bæði innan húss og utan, blómagarðurinn er sannkallaður ævintýraheimur – það leikur allt í höndunum á þeim.
Björg galdraði fram undurgott sítrónupasta og bauð upp á ljúffenga rabarbaraköku með möndlukeim á eftir. Allar jurtir og grös lífrænt beint inn úr garðinum, ferskt og svoooo gott.
Á sunnudaginn hefst fimmtánda tónlistarhátíðin þeirra Englar og menn í Strandarkirkju. Sem endranær er mikill metnaður á hátíðinni. Alls fernir tónleikar, hvern sunnudag í júlí. MEIRA HÉR.


Sumarlegt blómasalat
Hér gildir að sleppa sér í sköpununni og nostra við útlitið eins og Björg kann svo vel. „Mér finnst gaman að bera salöt fram í grunnum skálum þar sem maður getur dreift vel úr þeim. Það er gaman að skreyta salötin á sumrin með blómum sem má borða. Blóm af skjaldfléttu má borða, þau eru mjög falleg en nokkuð beisk á bragðið. Blóm af graslauk eru líka falleg og góð, fjólur og stjúpur má líka borða en þá er mikilvægt að passa að ekki sé búið að úða þær með skordýraeitri. Öruggast (og skemmtilegast) er því að rækta þær sjálfur!”
Blandið saman ýmsum salattegundum. Klettasalat er alltaf í uppáhaldi ásamt spínati, lambasalati (lamb lettuce), baby leaf salati o.fl.
Svo vel af ferskri basilíku eða ferskum kóríander, allt eftir hvað passar betur með matnum. Í salatið notaði Björg ca hálfan bolla af basilíku.
Í því eru einnig kirsuberjatómatar, jarðarber, burrata, graslaukur og bláber.
Dressing:
Setjið olíu og edik í skálina og hrærið saman við salatið rétt áður en byrjað er að borða. Í þetta salat setti Björg 2/3 góða ólífuolíu og 1/3 balsamic edik ásamt smá klípu af flögusalti.

Sítrónupasta
Sumarlegt sítrónupasta sem þau hjónin skella í á sumrin sem hvíld frá sumargrillinu. „Hér er líka gott tækifæri til að prófa sig áfram með ferskum kryddjurtum. Ég nota ýmist ítalska steinselju eða sítrónubasiliku og klettasalat beint úr garðinum er æði.” segir Björg
Sítrónupasta
3 sítrónur
350 g pasta að eigin vali, mér finnst ferskt spaghetti eða ferskt tagliatelle best
1 msk ólífuolía
2 msk ósaltað smjör
1/2 bolli rjómi
100 g klettasalat
1 bolli rifinn parmesan + meira út á réttinn
Salt og nÿmalaður svartur pipar
Handfylli af ítalskri steinselju til skrauts eftir smekk
Rífið börkinn í fína strimla, án hvíta hlutans og kreistið safann úr sítrónunum og látið í sitt hvort ílátið. Þið ættuð að fá um 2 msk af sítrónuberki og um 1/2 bolla af sítrónusafa.
Sjóðið vatn í stórum potti, bætið 2 tsk af flögusalti út í og sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á umbúðunum.
Þegar um 5 mínútur eru eftir af suðutíma pastans hitið þá olíuna í stórum potti eða pönnu. (Á þessu stigi má bæta við 2-3 hvítlauksrifjum eftir smekk og láta svitna í olíunni). Bætið þá smjörinu út í og síðan rjómanum þegar smjörið er bráðnað. Látið suðuna koma upp og bætið þá við sítrónusafanum og helmingnum af sítrónuberkinum. Sjóðið aðeins niður í um 2-3 mínútur.
Bætið nú soðnu pastanu (al dente) út í pottinn og hrærið hressilega saman. Bætið 1/4 bolla af pastavatninu saman við ásamt rifna parmesan ostinum og klettasalatinu. Bætið við pastavatni eftir þörfum, allt að 1 bolla í heildina til að létta sósuna.
Færið réttinn upp í skál og skreytið með ítalskri steinselju (líka gott að nota sítrónubasiliku eða sæta basiliku og jafnvel kóríander fyrir skemmtilegt tvist). Kryddið með flögusalti og nýmöluðum svörtum pipar og bætið parmesan osti við eftir óskum og þörfum 🙂
Borðið strax meðan heitt og njótið í botn!

Bakaðir kirsuberjatómatar með kaldri grískri jógúrt
350 g kirsuberjatómatar
3 msk góð ólífuolía
¾ msk cumin fræ (má sleppa)
½ tsk ljós púðursykur
2 hvítlauksgeirar, skornir í þunnar sneiðar
3–5 greinar ferskt timían
5 greinar ferskt oregano – 2-3 greinar fara með í ofninn og lauf af 2-3 greinum eru geymd til skrauts
Börkur af 1 lífrænni sítrónu, skorinn í fína strimla (án hvíta hlutans)
Nýmalaður svartur pipar
Flögusalt
½ tsk chiliflögur (má sleppa)
Jógúrtsósa
350 g þykk grísk jógúrt
¼ tsk flögusalt
sítrónubörkurinn
Hitið ofninn í 200°C.
Setjið kirsuberjatómatana í skál ásamt ólífuolíu, kúmenfræjum, púðursykri, hvítlauk, timían, þremur greinum af oregano, salti og pipar. Blandið vel saman.
Flytjið allt yfir í eldfast mót og bakið í 15 mínútur, eða þar til tómatarnir byrja að springa og safinn bubblar út.
Stillið síðan ofninn á grill og grillið í 6–8 mínútur, þar til tómatarnir fá fallegan gylltan lit.
Hrærið flögusalti og sítrónuberkinum saman við grísku jógúrtina. Geymið í kæli.
Smyrjið köldu jógúrtinni á grunnan disk eða fallegt fat með skeið.
Setjið heitu tómatana og safann úr forminu í miðjuna.
Fjarlægið timían- og oreganogreinarnar sem bökuðust með og stráið ferskum oregano- og timíanlaufum yfir. Ef vill má einnig bæta við örlitlum chiliflögum.
Berið fram strax með ristuðu súrdeigsbrauði eða nýbökuðu focaccia.
Gott að hafa í huga
Það sem gerir þennan rétt svo sérstakan er andstæðan á milli heitra, safaríkra tómatanna og ískalda gríska jógúrtsins.
Passið því að jógúrtsósan komi beint úr ísskápnum á meðan tómatarnir fara beint úr ofninum á diskinn. Þegar heitu tómatarnir renna út í köldu jógúrtina myndast dásamlega silkimjúk sósa sem er ómótstæðileg með stökku súrdeigs- eða focacciabrauði.
Ef þið finnið góða hunangssæta kirsuberjatómata verður þessi réttur enn betri. Smá sletta af bestu ólífuolíunni yfir réttinn rétt áður en hann er borinn fram – það lyftir bragðinu.

Rabarbarapæ Bjargar Þórhalls
500 g rabarbari
1 dl ljós púðursykur
200 g mjúkt smjör
150 g sykur
3 egg
1.5 dl ristað kókosmjöl
1dl möndlumjöl (ég nota möndlumjöl frá Gestus)
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk bourbon vanilluduft frá Rapunzel
Hitið ofninn í 200°C.
Skerið rabarbarann í um 1 cm stóra bita og dreifið í eldfast mót. Stráið púðursykrinum yfir og látið standa í nokkrar mínútur.
Bakið í 10 mínútur, eða þar til rabarbarinn byrjar að mýkjast. Takið úr ofninum og látið kólna lítillega.
Lækkið hitann í 170°C.
Þeytið smjör og sykur saman þar til blandan verður létt og ljós.
Bætið eggjunum út í, einu í einu, og hrærið vel á milli.
Blandið kókosmjöli, möndlumjöli, lyftidufti og vanilludufti saman og hrærið þurrefnunum varlega saman við með sleif eða sleikju. Ekki hræra meira en nauðsynlegt er.
Dreifið deiginu jafnt yfir rabarbarann.
Bakið við 170°C í 25–30 mínútur, eða þar til deigið er fallega gullið og bakað í gegn.
Berið fram volgt með þeyttum vanilluís* og / eða þeyttum rjóma
* Þeyttur vanilluís: Ég set vanilluís í kalda hrærivélaskál og þeyti þar til hann verður mjúkur eins og ís úr vél.
„Þetta pæ geri ég alltaf í minningu mömmu enda er það útfærsla á gamalli uppskrift frá henni.” segir Björg Þórhallsdóttir sem ég hef nú fengið matarást á.
– Sítrónupasta – Pasta – Rabarbari – Afternoon Tea –
.
