Þríhnjúkagígur – ferð inn í hjarta eldfjalls

0
Auglýsing

 

Þríhnjúkagígur. Stundum duga orð einfaldlega ekki. Að standa inni í hjarta eldfjalls var upplifun sem ég mun aldrei gleyma.

Þríhnjúkagígur – ferð inn í hjarta eldfjalls

Að fara niður í Þríhnjúkagíg er ein af þessum upplifunum sem erfitt er að lýsa með orðum. Fyrst er gengið á malarstíg yfir hrjúft mosavaxið hraunið í Bláfjallafólkvangi, síðan tekur við ferð niður í lyftu og þá opnast allt í einu nýr heimur – innviðir eldfjalls sem hefur staðið kyrrt í þúsundir ára.

Auglýsing

Þegar ég kom niður í gíginn varð ég einfaldlega orðlaus. Litirnir í berginu, stærð rýmisins og tilfinningin að standa inni í eldfjalli eru ólýsanleg. Myndir ná þessu einfaldlega ekki.

Það sem gerði upplifunina enn betri var hversu vel var staðið að öllu. Guðmundur Ingi leiðsögumaður var fróður, rólegur og faglegur og maður fann allan tímann að öryggið var í fyrirrúmi.

Þegar upp var komið beið Pálmi Freyr með kjarngóða kjötsúpu sem bragðaðist einstaklega vel eftir ævintýrið – því miður gleymdi ég að mynda súpuna.

Það er ekki oft sem maður getur sagt að maður hafi upplifað eitthvað sem er nánast einstakt í heiminum. Þetta var einmitt þannig stund.

Ef Þríhnjúkagígur hefur verið á listanum hjá þér, þá er mitt ráð einfalt: Farðu. Þetta er upplifun sem situr með manni löngu eftir að ferðinni lýkur.

–  ÍslandKjötsúpa  – English  –

Með Guðmundi Inga Þorvaldssyni leiðsögumanni
Efst er gígopið sem sigið er niður um, það er 4×4 metrar. Það eru 120 metrar niður á botn gígsins.

–  ÍslandKjötsúpa  –

Fyrri færslaBjörg Þórhalls og Hilmar Örn bjóða heim
Næsta færslaLaugarás lagoon og Ylja veitingastaður