Auglýsing
Sveskjuterta – krydduð og gómsæt Þurrkaðar plómur "góðar fyrir hægðirnar" Sveskjur krydd kókosflögur kryddbrauð kryddkaka
Sveskjuterta

Sveskjuterta. Dagurinn var tekinn snemma og bökuð sveskjuterta. Sumum finnst sveskjur lítið spennandi, þær hafa lengi vel haft á sér stimpilinn “góðar fyrir hægðirnar” og svo ekkert annað… Til að bregðast við minnkandi sveskjusölu í Bandaríkjunum er farið að selja þær sem Þurrkaðar plómur – við það eitt jókst salan til muna. En hvað um það, sveskjur eru góðar einar og sér eða í tertu eins og þessa. Hæfilegt magn af kryddum gerir hana enn gómsætari og minnir okkur á að nú styttist í jólin.

.

Auglýsing

KRYDDBRAUР— SVESKJURTERTURKAFFIMEÐLÆTI

.

Sveskjuterta

2 dl sveskjur
vatn
3 dl hveiti
1 tsk salt
1 tsk matarsódi
1 tsk allrahanda
1 tsk kanill
1 tsk múskat
2 dl olía
2 dl sykur
1 tsk vanilla
3 egg
1/2 b (soya)mjólk

Ofan á:

1 dl sykur
1 dl (soya)mjólk
100 g smjör
1 msk síróp
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilla.

Skerið sveskjurnar gróft, setjið í pott og vatn þannig að rétt fljóti yfir þær. Sjóðið í um 8 mín. Hellið vatninu af og látið kólna. Blandið saman hveiti, salti, matarsóda og kryddum í skál. Setjið í aðra skál olíu, sykur, vanillu, og egg og hrærið vel saman. Bætið við þurrefnunum og mjólkinni og loks sveskjunum. Bakið kringlóttu formi í 150° heitum ofni í 35-40 mín.

Á meðan kakan bakast er það sem fer ofan á undirbúið.

Setjið sykur, mjólk, smjör, síróp, matarsóda og vanillu í pott og látið sjóða í um 10 mín eða þar til þetta er orðið gyllt á litinn. Hellið yfir kökuna á meðan hún er enn heit (og í forminu). Stráið yfir kókosflögum.

 

Sveskjuterta
Sveskjuterta

.

KRYDDBRAUР— SVESKJURTERTURKAFFIMEÐLÆTI

SVESKJUTERTA –.

.