Hátíðlegur chiabúðingur
Það er auðvelt að útbúa chiagraut og líka möndlumjólk. Þessi bragðgóði chiabúðingur er léttur og hollur. Chiafræ eru kalk-, trefja- og prótínrík, auk þess innihalda þau omega 3 og 6. Verum meðvituð – líka yfir hátíðarnar.
.
— CHIAFRÆ — CHIAGRAUTAR — MÖNDLUMJÓLK —
.
Hátíðlegur chiabúðingur
1 1/2 b möndlu- eða kókosmjólk
1/4 b og 2 msk chiafræ
1 1/2 tsk hlynsýróp
2 tsk vanilla
1/2 tsk kanill
1/4 tsk engifer
1/4 tsk kardimommur
örlítill negull
Setjið öll innihaldsefnin í skál og hrærið saman. Hellið í fallega skál eða minni glös. Stráið kanil og eða negul yfir. Kælið í amk. klst.
.
— CHIAFRÆ — CHIAGRAUTAR — MÖNDLUMJÓLK —
.