
Hverra manna ertu?
Sú spurning hefur fylgt okkur Íslendingum frá öndverðu. Ættfræðiáhugi er hluti af menningu okkar; hann tengir okkur við fólk, staði, sögur og kynslóðirnar sem komu á undan okkur.
Mér hefur um árabil verið sönn ánægja að útbúa ættarhringi fyrir fólk. Þeir hafa reynst falleg og persónuleg gjöf við fermingar, afmæli, brúðkaup, stórafmæli og önnur merk tímamót — ekki síst handa þeim sem „eiga allt“.
Ættarhringur er ekki bara falleg mynd á vegg. Hann er minning, samtal, fjölskyldusaga og tenging við ræturnar. Þar má sjá kynslóðirnar raðast í hring, nöfn sem vekja forvitni og sögur sem oft lifna við þegar fjölskyldan kemur saman.
Í boði eru stórir ættarhringir fyrir einstaklinga eða hjón/pör, auk A4 ættarhringja þar sem langömmur og langafar eru í ysta hring. Hringirnir eru fáanlegir í nokkrum litum og henta vel bæði innrammaðir og sem PDF-skjal til útprentunar.
Verð:
Innrammaður stór ættarhringur: kr. 100.000
A4 ættarhringur í ramma: kr. 25.000
A4 ættarhringur án ramma, sendur sem PDF í tölvupósti: kr. 20.000
Viltu fá nánari upplýsingar um ættarhring, afhendingartíma eða verð? SENDIÐ PÓST Ættarhringur er falleg, þjóðleg og afar persónuleg gjöf sem gleður lengi.
🇮🇸


Ættarhringur – persónuleg og þjóðleg gjöf.


Fleira spennandi:
— Draumaterta dásamlega góð – Hrísgrjónagrautur á laugardegi – Vöfflur hin klassíska uppskrift – Soðin egg — Hægeldaðir lambaskankar — Steiktur fiskur í brúnni sósu og ávaxtagrautur með rjóma — Saltfiskur í ólífuolíu — Póstlistinn — Bananamúffur með döðlum og súkkulaði — Skúffukaka sem klikkar ekki –

