Bláberjaterta – undurgóð og silkimjúk

Bláberjaterta – undurgóð og silkimjúk möndlur kókosmjöl bláber raw food kaka terta hollusta hráterta
Bláberjaterta – undurgóð og silkimjúk

Bláberjaterta

Svei mér þá, ég held bara að hrákökur geti ekki klikkað. Það þarf ekki að láta deigið lyfta sér, enginn bakstur, þær falla ekki – engin mistök. Dásamlega góð terta og holl líka. Það mun öllum líka vel við þessa tertu, hún er undurgóð, fyllingin silkimjúk og bláberin minna okkur á að það verður komið sumar eftir ekki svo langan tíma. Hver elskar ekki bláber? Þau eru trefjarík, full af C og K vítamínum.  Það er kjörið að eiga frosin bláber og setja út í bústið.

.

HRÁFÆÐIBLÁBERTERTURVEGAN

.

Bláberjaterta – undurgóð og silkimjúk
Bláberjaterta – undurgóð og silkimjúk

Bláberjaterta – raw

Botn:
2 b hýðislausar möndlur, lagðar í bleyti í um 20 mín
1 b döðlur, lagðar í bleyti í um 20 mín
1/2 b kókosmjöl
börkur af 1/2 sítrónu
safi úr 1/2 sítrónu
2 msk kókosolía fljótandi
1/3 tsk salt

Fylling:
2 1/3 b kasjúhnetur, lagðar í bleyti í um 20 mín
1/4 b kókosolía, fljótandi
1/4 b hunang
1 tsk vanilla
safi úr 1/2 sítrónu

Ofan á:
3/4 b bláber
1/4 b hunang
1/4 b kókosolía, fljótandi
smá salt

Botn: Hellið safanum af möndlunum og döðlunum, setjið í matvinnsluvél ásamt kókosmjöli, sítrónusafa, sítrónuberki, kókosolíu og salti. Maukið. Setjið kringlótt tertuform (án botnsins) á tertudisk. Setjið „deigið” þar í og þjappið. Kælið

Fylling: Hellið vatninu af hnetunum, setjið allt í matvinnsluvél og maukið vel, mjög vel. Hellið yfir botninn.

Ofan á: Setjið allt í matvinnsluvél og maukið, samt ekki of fínt. Setjið ofan á fyllinguna og kælið í nokkra klukkutíma eða yfir nótt.

.

HRÁFÆÐIBLÁBERTERTURVEGAN

— UNDURGÓÐ BLÁBERJATERA —

.

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn

Bessastaðaterta frá forsetatíð Kristjáns og Halldóru Eldjárn. Vilborg systir mín var aðstoðarráðskona á forsetasetrinu síðasta ár Kristjáns Eldjárns í embætti og vann þar fyrstu mánuði Vigdísar. Ég fór einu sinni í heimsókn þegar hún var að vinna á Bessastöðum og mér fannst þetta eins og höll - þarna var ég ekki orðinn táningur. Held það sé í lagi að segja frá því núna að ég svalaði forvitni minni vel með því að skoða allt húsið hátt og lágt og naut þess í botn. Man eftir að hafa farið í vínkjallarann undir eldhúsinu, niður þröngan stiga, þar sem  einu sinni var fangelsi. Í kjallaranum voru rimlar fyrir litlu gluggunum og metersþykkir veggir (eins og allstaðar í húsinu) og svo mátti enn sjá hlekki í útveggnum. Í eldhúsinu man ég að voru stórar tréskúffur með mat í, ein var full af rúsínum....