Ítölsk brauðterta
Það var heldur betur veisla í síðasta föstudagskaffi vetrarins. Kjartan Valdemarsson sló í gegn sem aldrei fyrr með ítalskri brauðtertu. Ætli megi ekki segja að hún hafi runnið út eins og heitar lummur. Hann kom með tvær, önnur var með hvítu brauði en hin grófu. Í mínu ungdæmi voru brauðtertur aðeins öðruvísi, sæmilega þykkar skonsur og á þær settar salat og síðan skreytt. Vonandi eru einhverjir sem viðhalda svoleiðis brauðtertum.
.
— KJARTAN VALD — BRAUÐTERTUR — FÖSTUDAGSKAFFI — ÍTALÍA —
.
Ítölsk brauðterta
Fimm brauðtertubrauðsneiðar (fínar eða grófar)
Fylling A
30 g basilika, blöðin söxuð smátt (nokkur blöð geymd fyrir skreytingu)
1 ds sacla bruschettina
250 g Mascarpone ostur
ca 1/2 dós 18% sýrður rjómi
salt og pipar
Setjið allt í skál og blandið saman
Fylling B
1/2 ds Sacla Fiery Chilli Pesto
1 Stóri Dímon ostur (250 g), maukaður
1 dós 18% sýrður rjómi
salt og pipar
setjið allt saman og blandið saman
1 agúrka skorin í sneiðar
1 paprika skornar í bita
Kakan sett saman: Skerið skorpuna af brauðinu. Setjið eina brauðlengju á disk, smyrjið ofan á fyllingu A og gúrku þar ofan á. Setjið næstu brauðlengju á og smyrjið með fyllingu B og papriku ofan á. Næsta lag + gúrka. Endurtakið
Ofan á:
1 dós sýrður rjómi 36%
ca 8 sneiðar parmaskinka
12 – 14 kirsuberjatómatar
ca 15-20 svartar ólífur
fersk basilika blöð til skrauts
tíu ristaðar pekanhnetur
Smyrjið sýrða rjómanum á tertuna, bæði á hliðarnar og ofan á. Skreytið með skinku, tómötum, ólífum, basilíku og pekanhnetum.
Einnig fallegt að skreyta brauðtertuna með t.d. klettasalati. Stráið pekan hnetum yfir.
Uppskriftin birtist á eldhússögum.com en er hér nokkuð breytt í meðförum Kjartans.
.
— KJARTAN VALD — BRAUÐTERTUR — FÖSTUDAGSKAFFI — ÍTALÍA —
.