
OTO restaurant
OTO lætur ekki mikið yfir sér frá Hverfisgötunni, en þegar inn er komið birtast vandaðir innviðir, fallegur mjúkur viður og manni líður strax svolítið eins og það sé tekið utan um mann. Alls staðar var þétt setið, sem er svo sem ekki að undra miðað við það orð sem fer af staðnum, en hann er mun stærri en hann sýnist að utan. Þjónusta var sérlega hlýleg og vingjarnleg. Hægt er að fá fjölréttamáltíð af matseðli valda af kokkinum fyrir allt borðið. Maturinn reyndist sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana!
Matseðillinn er undir japönskum og ítölskum áhrifum og varð að algjöru matarævintýri. Enn og aftur urðum við undrandi á gróskunni í veitingahúsum hér á landi, þarna eru vönduð vinnubrögð eins og best verður á kosið, þar sem smáatriðin skipta máli, hugmyndaauðgi og yndislegt viðmót. Í alvöru, við ættum að selja ferðamönnum ferðir til Íslands sem eru skipulagðar í kringum matarupplifun, þar yrði OTO frábær viðkomustaður.
— VEITINGASTAÐIR — ÍSLAND — ÍSLENSKT — SÓLRÚN BJÖRNSD — MATARBORGIR — MICHELIN — ENGLISH —
.













Fleira áhugavert:
— Bragðmikil linsubaunasúpa með kókosmjólk — Skúffukakan besta — Grafinn lax og graflaxsósa — Rabarbarasulta — Sítrónu linguine Nigellu — Múffur með eplum og haframjöli — Döðlukonfekt, gott, gott — Ítölsk sítrónukaka — Glútenlaus súkkulaðiterta —
