Síðdegiskaffi hjá Ólöfu og Ásgeiri
Ólöf frænka mín Jónsdóttir bauð í síðdegiskaffi og naut aðstoð við undirbúninginn frá Ásgeiri eiginmanni sínum. Það var sannkallað hlaðborð hjá þeim hjónum með döðlutertu, grænmetisböku, silungasalati og ýmsu fleira góðgæti. Varla þarf að taka fram að við gestirnir tókum hraustlega til matar okkar. Olla er heimilisfærðikennari í Keflavík og er nýbúin að gefa út stórfínar matreiðslubækur ætlaðar yngstu stigum grunnskóla. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar hún var í sveit heima á áttunda áratugnum. Þegar ég fluttist til borgarinnar nýorðinn sextán ára þá passaði ég Berglindi dóttur hennar stundum og lagði með því mitt af mörkum svo þau Ásgeir næðu saman – ef svo má segja 🙂
#2017Gestabloggari 21/52 — KAFFIBOÐ — DÖÐLUTERTUR — ÓLÖF JÓNSD —GRÆNMETISBÖKUR —
.
Döðlukaka með karamellusósu
250 g döðlur, skornar í bita
1 dl vatn
1 tsk matarsódi
120 g kókosolía eða mjúkt smjör (í þessari var kókosolía)
5 msk púðursykur eða hrásykur eða reyrsykur eða bara sykur (í þessari var reyrsykur)
2 egg
3 dl fínmalað spelt eða hveiti (í þessari var fínt spelt)
1/2 tsk salt
1/2 tsk vanilludropar
1 ½ tsk lyftiduft
1. Látið döðlurnar í pott, hellið vatninu yfir og látið sjóða í 5 mínútur, takið af hitanum og hrærið matarsódanum saman við.
2. Látið döðlumaukið kólna í 5 mínútur, á meðan hrærið þið saman kókosolíunni og sykrinum í hrærivél.
3. Bætið döðlumaukinu út í hrærivélaskálina og hrærið vel í nokkrar mínútur svo úr verði góður grautur.
4. Bætið öllu öðru saman við og hrærið vel.
5. Hellið í form og bakið við 180 gráður og blástur í 40 mínútur.
Karamellusósa
100 g púðursykur
100 g smjör
1 dl rjómi
½ tsk vanilludropar
1. Sjóðið saman í um það bil 5 mínútur eða þar til ykkur líkar þykktin, hrærið í svo til allan tímann
2. Látið kólna smástund og hellið síðan yfir kökuna. Gerið það nokkru sinnum eða berið afganginn fram með.
Eggjabaka með grænmeti og skinku
34 plötur smjördeig, eftir stærðinni á forminu sem þið notið
1 blaðlaukur, hvíti hlutinn, skorinn í sneiðar
1 haus spergilkál, skorinn í litlar greinar
2 paprikur (ég notaði rauða og appelsínugula), í litlum bitum
1 msk olía
½ dós rjómaostur með pipar
5-6 sneiðar hráskinka (hægt að nota venjulega skinku), skorin í bita.
6-8 egg, eftir því hve mótið er stórt
1 dl rjómi
2-3 tómatar skornir í sneiðar
1 camenbert ostur skorinn í sneiðar( líka hægt að nota rifinn ost)
svartur pipar
Stillið ofninn á 180 gráður og blástur.
Fletjið smjördeigið út og leggið í bökuform eða annað eldfast form.
Mýkið blaðlauk, spergilkál og papriku í olíu á pönnu við frekar vægan hita í um það bil 10 mínútur, grænmetið á ekki að brúnast.
Hrærið rjómaostinum saman við grænmetið og látið það á smjördeigið.
Dreifið skinkunni yfir.
Þeytið saman í skál egg og rjóma og hellið yfir grænmetið og skinkuna.
Raði tómatsneiðunum ofan á og síðan camenbert ostinum.
Kryddið með svörtum pipar.
Bakið í 40 mínútur.
Eins og áður hefur komið fram erum við leikjaóð í fjölskyldunni. Áður en við komum til Ollu og Ásgeirs var rúntað um Suðurnesin á tveimur bílum og helstu ferðamannastaðir skoðaðir. Fyrir kaffiheimsóknina skoruðum við á þau í hinum bílnum sem skoruðu á okkur til baka. Áskorunin fólst í því að við sendum þeim þrjú orð (sem voru eyrnamerkt hverjum og einum) og þau sendu okkur til baka þrjú orð. Fólk átti að koma sínu orði u.þ.b. tvisvar að í kaffiboðinu. Orðin sem við sendum yfir voru: Fáskrúðsfjörður, Reykjanesshryggur og matarsódi. Á móti fengum við: rottumítill, fitubolla og Þór Saari. Allir komu sínu orði að en sérstaka kátínu vakti þegar Einar fór upp úr þurru að tala um Þór 🙂
–
#2017Gestabloggari 21/52 — KAFFIBOÐ — DÖÐLUTERTUR — ÓLÖF JÓNSD —GRÆNMETISBÖKUR —
— Í SÍÐDEGISKAFFI HJÁ ÓLÖFU OG ÁSGEIRI —
–