Iceland Local Food – Sælkerakort Völu Matt

Iceland Local Food – Sælkerakort Völu Matt

Iceland Local Food

Sælkerakort Völu Matt. Matur úr héraði er mjög vinsælt framtak, ekki bara hér á landi heldur víðast hvar um heiminn. Á ferðalögum getur farið dýrmætur tími í að finna staðina sem bjóða upp á local matinn. Frumkvöðullinn og fjölmiðlakonan Valgerður Matthíasdóttir, sem flestir þekkja sem Völu Matt, stendur fyrir heimasíðunni IcelandLocalFood.is og gefur árlega út sælkerakort með sama heiti. Þar eru á einum stað allt það helsta sem telst til matar úr héraði og listinn er sífellt að lengjast enda eykst áhuginn ár frá ári.

VALA MATT

.

Iceland Local Food – Sælkerakort Völu Matt

Valgerður Matthíasdóttir gerði þáttaröðina Sælkeraferð um Ísland fyrir Stöð 2 þar sem hún fór í sælkeraævintýri í kringum landið

„Ástæðan fyrir því að ég byrjaði á þessu verkefni var sú að ég var í sjónvarpstökum úti á landi og vantaði sjálfa upplýsingar um skemmtilega veitingastaði á landsbyggðinni en fann engin kort eða bæklinga sem bara fjölluðu um mat. Svo ég ákvað að búa til sælkerakortið Food Maps og sælkeraheimasíðuna IcelandLocalFood þar sem hægt er að smella á landshlutana þar sem maður er staddur og þá koma upp allar heimasíður veitingastaðanna og markaðanna og hægt er að skoða stemmningu staðanna, matseðla og verðin og ákveða útfrá því hvert væri gaman að fara. Ég ákvað að hafa kortið á ensku til að erlendu ferðamennirnir gætu fundið skemmtilega staði til að borða en svo komst ég náttúrulega að því að eins og ég sjálf þá eru eiginlega allir aðrir Íslendingar sem þurfa þessar upplýsingar ekki síður. Það eru svo margar faldar perlur út um allt land sem svo gaman er að upplifa. Ég hef ekki séð svona verkefni erlendis en það er kannski til einhvers staðar. Svo var mér bent á að kannski væri þetta spurning um að fara í útrás og búa til svona dæmi í öðrum löndum. Hver veit. En alltaf þegar ég fer til útlanda þá byrja ég á því að kynna mér mat og matarmenningu landsins og borgarferðir hjá mér snúast orðið að mestu um matarupplifun enda elska ég að upplifa skemmtilega stemmningu veitingastaða og sælkerabúða og sælkeramat. Það er fátt skemmtilegra. Þetta er eitt skemmtilegasta fjölmiðlaverkefni sem ég hef unnið af því ég elska góðan mat og að prófa eitthvað nýtt og svo elska ég skemmtilega hönnun veitingastaða hvort sem þeir eru hráir, gamaldags eða nýtískulegir. Eitt af mínum mottóum í lífinu er að búa til ævintýri og svo upplifa og njóta þeirra” segir hin glaðlega Vala Matt.

VALA MATT

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Svikið útlent berjamauk (syltutöj)

Svikið útlent berjamauk (syltutöj)
Töluvert er hér notað af útlendu berjamauki (syltutöj). Er það illa farið, því að bæði er það óhollasta ávaxtanautnin og útlenda berjamaukið oft svikið, og sorglegt að vita til þess, hve miklir peningar fara út úr landinu fyrir það og saft, sem lítið á skylt við ávexti, sem að eins er sykurlögur litaður með anilínlit. Af innlendum ávöxtum höfum vér aðallega ber. Rabarbara má nota á sama hátt sem ávexti (handa heilbrigðu fólki). Rabarbari ætti að vera til á hveru einasta íslenzku heimili, því að hann getur vaxið svo að segja fyrirhafnarlaust.

Mangó- og kasjúhnetubúðingur – silkimjúkur, hollur og ferskur

Mangó- og kasjúhnetubúðingur. Ef þið eruð að leita að einföldum, hollum og fljótlegum eftirréttir sem ekki er hægt að klúðra er svarið hér. Held það sé bara ekki hægt að klúðra þessum eftirrétti. Silkimjúkur, ferskur og hollur. Það má eflaust frysta hann og gera þannig ís. Margrét Jónsdóttir Njarðvík útbú þennan góða eftirrétt þegar hún hélt mjög skemmtilegt matarboð á dögunum