Rjómakaramella
Eitt það skemmtilegast sem ég gerði í eldhúsinu þegar ég var lítill var að útbúa karamellur. Það telst nú kannski ekki æskilegt í nútímanum að leyfa börnum að stússast við slíkt enda er brendur sykur mjög hættulegur.
— KARAMELLUR —
.
Rjómakaramella
1/2 b sykur
30 g smjör (um 2 msk)
1/2 tsk salt
smá vanilla
1/4 b rjómi
Setjið sykur, smjör og salt á pönnu og brúnið. Hrærið stöðugt í bætið rjómanum saman við þegar sykurinn er orðinn aðeins meira en ljósbrúnn. Slökkvið undir og hrærið í áfram.