Kaffiveisla hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar

Kaffiveisla hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar, Jóna Matthildur Jónsdóttir, dómkirkjan í Reykjavík
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar

 Kaffiveisla hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar

Víða eru líknarfélög og hópar sem vinna að góðum málefnum án þess að mikið fari fyrir þeim. Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar var stofnuð til þess að standa að prýði Dómkirkjunnar og vinna að líknarmálum. Þær halda aðventukvöld farið í sumarferðalag auk reglulegra félagsfunda. Kirkjunefndin stóð fyrir ýmsum lagfæringum í tilefni 220 ára afmælis Dómkirkjunnar árið 2016.  Formaðurinn Jóna Matthildur Jónsdóttir hafði samband og bað okkur Bergþór að koma á fund í safnaðarheimili kirkjunnar og tala um borðsiði, kurteisi og fleira slíkt. Úr urðu hinar líflegustu umræður. Við byrjum á að að njóta veitinga hjá þeim dömum, fjölmargar tertur og annað góðgæti beið okkar sem þær útbjuggu af mikilli natni og kærleik. Í lokin voru sungin tvö lög.

Brauðterta og Peruterta
Brauðterta og Peruterta

Brauðterta og Peruterta

Kaffiveisla hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar dómkirkjan
Lóan er komin…

Hressilega tekið undir í Lóan er komin

Glæsilegt kaffiborðið

Kókosbollu- og berjabomba
Kókosbollu- og berjabomba

Kókosbollu- og berjabomba

4-5 kókosbollur

1 marengsbotn brotin niður

500 ml rjómi

1 lítill Nóa Kropp

Ber að eigin vali

Stífþeytið rjómann, bætið kókosbollunum samanvið með sleikju, brjótið marengsbotninn saman við og Nóa kroppinu. Setjið í form og vel af berjum yfir.

Allra besta hráfæðikakan döðlur möndlur kaffi súkkulaði bláber kókosflögur
Allra besta hráfæðikakan

Allra besta hráfæðikakan

150 g möndlur

20 stk döðlur, steinlausar

2 msk kókosolía

1 tsk vanilludropar

hnífsoddur salt

3 msk sterkt kaffi

2/3 dl kókosflögur

2 msk kakó

150 g dökkt súkkulaði

Byrjið á að rista möndlur í 225°c heitum ofni í um 10 mínútur (hrærið af og til í blöndunni). Takið út og kælið.
Setjið döðlur, kókosolíu, kaffi, kakó, kókosflögur, salt og vanilludropa saman í matvinnsluvél og blandið vel saman. Grófsaxið möndlurnar og bætið þeim saman við.
Mótið kökuna á kökudiski.
Bræðið súkkulaðið (ég nota oftast örbylgjuofninn til þess (sorrynotsorry) og hellið yfir kökuna. Þá er kakan tilbúin. Berið fram og njótið!

Uppskriftin er af hinni stórfínu síðu grgs.is

Auglýsing

Meira úr sama flokki

Rice krispies múffur

Rice krispies múffur. Það sem mér hefur helst þótt að Rice Krispies kökum/múffum er að oft er allt of mikið að sírópi og stundum notaður sykur líka - gleymum ekki að Rice Krispies eitt og sér er hlaðið sykri. Þorbjörg kom með Rice krispies múffur í föstudagskaffið í vinnunni sem voru ekki dýsætar. Annars eigum við að taka höndum saman og minnka sykur í mat.

Vagninn á Flateyri

Vagninn á Flateyri opnaði síðastliðna helgi eftir hálfgerðan vetrardvala og verður opinn í allt sumar með fullri starfsemi. Framundan er viðburðarríkt sumar með fjölda uppákoma, tónleika, plötusnúða, uppistands, knattspyrnuspennu, barnavagns og annars sprells. Elísabet Reynisdóttir matgæðingur, næringarfræðingur og hressleikabomba stendur vaktina í eldhúsinu en inn á milli mæta handvaldir framúrskarandi gestakokkar

Brunch á Essensia – framúrskarandi ljúffengur

Brunch á Essensia - framúrskarandi ljúffengur. Essensia er uppáhaldstaður og nú var kominn tími til að prófa brunchinn, eða dögurðinn, eins og hann er stundum nefndur á íslensku, en um er að ræða marga spennandi eggjarétti. Boðið er upp á þessa nýjung öll laugardags- og sunnudagshádegi kl. 11-15.30. Það má sannarlega mæla með brunch á Essensia og eins og venjulega er tilvalið að panta nokkra rétti og deila, það er stemning í því og forvitnilegt.