Auglýsing

hindberjaostakaka, terta, Vinkvennakaffi, Bergdís Ýr Bökuð hindberjaostakaka – næstum því hættulega góð

Bökuð hindberjaostakaka. Bergdís Ýr er afar flink bakstri og öðru matarstússi eins og hún á kyn til. Gráfíkjukaka og terta úr grófu mjöli með mjög góðu kremi útbjó Bergdís eftir uppskriftum ömmu sinnar. Hún bakaði hindberjaostaköku og kom með í árlegt vinkvennakaffi. Stórfín terta sem var borðuð upp til agna.

BERGDÍS ÝRHINDBERTERTUR

Bökuð hindberjaostakaka – næstum því hættulega góð Bergdís ýr
Vilborg, Gúddý, Vildís, Bergdís, Gunna Stína, Elísabet og Sirrý.

Bökuð hindberjaostakaka

12 stk Digestive súkkulaðikex

80 g smjör, bráðið

500 g rjómaostur (mjúkur, við stofuhita. Mér finnst best að nota MS eða Philadelphia)

2 msk hveiti

175 g sykur

vanilludropar

2 egg ásamt 1 eggjarauðu

140 ml sýrður rjómi

400 g hindber (ég afþýði frosin ber)

1 msk flórsykur.

Hitið ofninn á 180°c
Myljið kexin í matvinnsluvél eða í plastpoka. Blandið því saman við bráðið smjörið. Látið í hringlaga form (ca. 20 cm í þvermál) og bakið í 5 mínútur. Kælið botninn í forminu.

Hrærið rjómaostinn saman við hveitið, sykurinn, nokkra dropa af vanilludropum, eggin,eggjarauðuna og sýrða rjómann þar til blandan er orðin létt, ljós og algjörlega kekkjalaus. Hrærið 250 g af hindberjum varlega saman við (má vera meira eða minna af berjum, allt eftir smekk).

Bakið í um 40-50 mínútur. Takið úr ofni og kælið kökuna í forminu.

Að lokum geri þið hindberjasósu með því að láta afganginn af hindberjunum í pott og blanda 1 msk af flórsykri saman við. Bætið við flórsykri ef þið viljið að sósan sé sætari. Hitið þar til þetta er orðið að mauki og merjið með gaffli. Sigtið blönduna og berið fram með kökunni.

.

— BÖKUÐ HINDBERJATERTA —

.

Auglýsing